Fínasti sigur vannst gegn liði Japan í níundu umferð Ólympíuskákmótsins í Samarkand sem fram fór í dag. Í kvennaflokki var liðað að sætta sig við tap gegn Úzbekisan-2 með minnsta mun 1½–2½. Á toppnum halda Úzbekar velli eftir mikilvægan sigur gegn Bandaríkjamönnum og ótrúlegt en satt þá er Úzbekistan-2 í 3. sæti í opna flokknum! Kínverjar virðast eiga sigurinn vísan í kvennaflokki þótt að tvær af þremur bestu skákkonum þeirra sitji heima!
Opinn flokkur: Ísland– Japan
Ágætis pörun upp á framhaldið, íslenska liðið stigahærra á öllum borðum en ekki má gleyma því að síðast þegar þessi lið mættust tapaðist viðureignin!
Hannes virtist ætla að hrista af sér slenið og var í fínustu málum framan af sinni skák en ótrúleg fljótfærni í 28. leik kostaði skákina. Hannes hafði nægan tíma á klukkunni og á að finna 28.Bxe6 í stöðunni sem vinnur skákina! Japan komið óvænt yfir þarna!
Enn og aftur kom Guðmundur til bjargar og jafnaði viðureignina. Fimmti sigur Guðmundar í röð sem hefur komið eins og stormsveipur inn í seinni part mótsins. Drottningaruppskipti nánast mistök gegn Guðmundi í þessum ham°!
Jóhann var ánægður með stöðuna sem hann fékk snemma tafl og gat teflt þetta mikið til á rútínunni. Sigurinn kom okkur í 2-1
Vignir var þá kominn með vænlegt tafl en hann þurfti að hafa aðeins fyrir sinni skák eftir að hann missti af séns á að refsa byrjunarmistökum andstæðings síns. Með tíð og tíma tók Vignir þó yfir og lagði loks Tran en þeir mættust þarna í þriðja skiptið!
Íslenska liðið komið með 12 stig, aðeins stigi á eftir Bandaríkjunum (!), og næst á dagskrá eru Danir. Ísland er í 2. sæti í B-categoríu og góður endasprettur gæti tryggt verðlaun þar!
Úzbekar færaast nær gullinu með sigri á Bandaríkjamönnum. Indverjar halda í vonina, náðu að snúa tapaðri viðureign í sigur gegn Þjóðverjum en Gukesh sneri töpuðu tafli í vinning! Úzbekistan-2 eru í þriðja sæti eftir stórsigur á Hollandi, gríðarlega óvænt!
Minnstu munaði að Uzbekistan og Uzbekistan-2 hefðu mæst! Armenar fá það hlutverk að stoppa hraðlest heimamanna á meðan að „b-liðið“ reynir að kæfa vonir Indverja. Þrjú lið eru enn taplaus, Armenar, Frakkar og Rúmenar!!
Kvennaflokkur: Ísland – Úzbekistan-2
Úzbekistan-2 eru ekki að gera alveg jafn góða hluti í kvennaflokki eins og í opna flokknum. Engu að síður sterkt lið en okkar konur áttu ágætis sénsa, sérstklega þar sem efsta borð Úzbeka hvíldi.
Lenka tók jafntefli með hvítu í Zaitsev-afbrigðinu. Ákveðin áhætta en líka fínt að núlla út sterkasta borð andstæðinganna.
Guðrún lenti í mikilli baráttuskák á 3. borði. Hrókerað var á sitthvorum á vængnum og líklegast tók og langan tíma fyrir hvítan að henda g-peðinu fram til að opna taflið. Svartur var á undan og fínn undirbúningsleikur …Dc6 og riddarafórn á b2 tryggði svörtum sigurinn.
Iðunn jafnaði metin með býsna vel útfærðri skák. Framrás e-peðsins var vel tímasett eftir að tveir leikmenn hvítu stöðunnar voru sendir í herbúðir í Síberíu á drottningarvængnum. Kóngssókn svarts gekk upp, besta taflmennska var mát í 5 á einum stað en sigurinn aldrei í hættu eftir þessar aðgerðir. Þriðji sigur Iðunnar í röð.
Úrslitin réðust því í tvísýnni skák Hallgerðar, snemma virtist Hallgerður undir mikilli pressu en staðan reyndist á köflum mjög tvísýn og Hallgerður átti nokkra sénsa til að taka yfir frumkvæðið og/eða jafna taflið. Eftir erfiða vörn missti Hallgerður af taktíksri leið sem vann mann fyrir hvítt…sem var skítt…því svartur var við það að jafna taflið.
Tap með minnsta mun en á góðum degi hefði íslenskur sigur getað fallið hér!

Næst á dagskrá eru Írar. Fyrsta borð þeirra sterkt en á öðrum borðum eiga leikar að vera meira og minna jafnir. Ísland á enn einhverja möguleika í C-categoríunni en Sri Lanka tóku 2 stiga forystu í dag með góðum sigri og því má líklegast ekki tapa í þeim viðureignum sem eftir er ef Ísland vill verðlaun þar!
Kínverjar virðast eiga sigurinn vísan í kvennaflokki eftir fínan sigur í umferð dagsins.
Ólympíu-tenglar!
- Tengill sem á að virka í hverri umferð: Beinn tengill á skákir Íslendinga á 8by8verse
- Skákir á lichess (þarf að velja rétt umferð og flokk) : Lichess beint
- Opinber heimasíða mótsins: chessolympiad2026.fide.com
- Pörun og staða, opinn flokkur: chess-results.com – Open
- Pörun og staða, kvennaflokkur: chess-results.com – Women
- Bein útsending FIDE á YouTube: youtube.com/@FIDE_chess/streams
- Chess.com-síða mótsins: 2026 FIDE Chess Olympiad
- Íslenskar fréttir og viðtöl við farana: skak.is og flokkurinn Ólympíufarinn
- INSTAGRAM síða Skáksambandsins (Story o.f.l.) : Instagram
- Yfirlit á Wikipedia: 46th Chess Olympiad

















