Tíunda umferð Ólympíuskákmótsins í Samarkand hófst kl. 10:00. Síðasta umferðin er á morgun. Andstæðingar dagsins eru Danmörk í opnum flokki og Írland í kvennaflokki. Hannes Hlífar og Guðrún Fanney hvíla.

Opna liðið vann Japan 3–1 í gær. Vignir, Jóhann og Guðmundur unnu, Hannes tapaði. Eftir níu umferðir er Ísland með 12 liðsstig og 23½ borðstig.

Kvennaliðið er með 10 liðsstig. Guðrún Fanney er með 6 af 9 og hvílir; Hrund kemur inn.

Opinn flokkur: Danmörk – Ísland

Allir fjórir Danir eru stórmeistarar og stigahærri. Hilmir kemur inn; Hannes hvílir.

Borð Danmörk stig Ísland stig
1 GM Jonas Buhl Bjerre 2615 GM Vignir Vatnar Stefánsson 2531
2 GM Jesper Søndergaard Thybo 2579 IM Hilmir Freyr Heimisson 2342
3 GM Mads Andersen 2549 GM Jóhann Hjartarson 2461
4 GM Björn Møller Ochsner 2478 GM Guðmundur Kjartansson 2402

Vignir er með 6½ af 9 og mætir Bjerre. Hilmir teflir við Thybo, Jóhann við Andersen og Guðmundur, sem er með 5 af 6, við Ochsner. Liðin eru jöfn í liðsstigum.

Kvennaflokkur: Ísland – Írland

Lenka teflir svörtum á fyrsta borði gegn WGM Trisha Kanyamarala (2289). Hallgerður fær hvítt gegn Alice O’Gorman. Iðunn teflir með svart gegn WFM Diana Mirza. Hrund mætir WCM Antoninu Gora.

Borð Ísland stig Írland stig
1 WGM Lenka Ptácníková 2082 WGM Trisha Kanyamarala 2289
2 WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir 1995 Alice O’Gorman 2009
3 WCM Iðunn Helgadóttir 1869 WFM Diana Mirza 1950
4 Hrund Hauksdóttir 1817 WCM Antonina Gora 1946
Hverjir eru efstir á mótinu?

Eftir níu umferðir af 11

Opinn flokkur: Úsbekistan er enn í forystu með 16 liðsstig og mætir Armenía (15). Indland og Úsbekistan 2 eru með 15. Kína, Frakkland og Spánn með 14.

Kvennaflokkur: Toppsveitirnar eru enn Kína, Kasakstan, Indland og Georgía. Í

Vefsíður til að fylgjast með

- Auglýsing -