Helgina 25-27 september fór fram fyrsta mótið í Friðrikssyrpu mótaröðinni sem markar upphaf skákmóta barna hjá Taflfélaginu fyrir haustið. Eins og venjulega er mikið um fastagesti á þessari mótaröð en einnig nýir keppendur og aðrir sem hafa ekki sést lengi á mótunum. Mótið var ágætlega mannað og voru 33 keppendur skráðir til leiks.
Mikið var um óvænt úrslit og spenna um verðlaunsæti var allt fram í loka umferðina.

Fyrir lokaumferðina var Jónatan Leó einn efstur með 5½ vinning. Rétt á eftir honum var Óðinn Darri aðeins hálfum vinningi á eftir. Mættust þeir í lokaumferðinni.
Eftir að hafa byggt upp ágætis stöðu kom upp leppun sem reyndist Óðni dýrkeypt sem tryggði Jónatan sigur. Jónatan endaði þar með einn efstur með 6½ vinning og þar með fyrsta sigur sinn á Friðrikssyrpu móti.

Á öðru borði mættust Helgi Fannar og Matthías Magnússon. Eftir að hafa fengið algjört tak á miðborðinu kláraði Helgi Fannar skákina mjög sannfærandi. Helgi Fannar tryggði sér þar með annað sætið óskipt með 5½ vinning.

Í þriðja til fimmta sæti enduðu Katrín Ósk Tómasdóttir, Óðinn Darri Hjálmarsson, og Róbert Heiðar Skúlason öll með 5 vinninga. Grípa þurfti til útreiknings á oddastigum og reyndist Óðinn Darri hálfu stigi á undan Katrínu og tryggði sér þannig 3.sætið í mótinu.
🥇 Jónatan Leó Daðason 6½
🥈 Helgi Fannar Óðinsson 5½
🥉 Óðinn Darri Hjálmarsson 5

🥇 Katrín Ósk Tómasdóttir 5
🥈 Emilía Klara Tómasdóttir 3½
🥉Alexandra Voron Aðalsteinsdóttir 2½
Taflfélag Reykjavíkur vill þakka keppendum fyrir þátttöku á mótinu og vonast til að sjá sem flesta á næsta móti í mótaröðinni. Næsta mót verður í Nóvember en dagsetning fyrir næsta mót verður auglýst fljótlega.
Hægt er að sjá lokastöðu mótsins á úrslitasíðu mótsins á Friðrikssyrpa TR I 2026-27
Hægt er að sjá myndir frá mótinu á Ljósmyndasíðu Skáksambands Íslands
















