Íslandsmót barna- og unglingasveita (taflfélaga) 2026 fer fram
sunnudaginn 18. október í Miðgarði, fjölnotaíþróttahúsinu í Garðabæ.
Taflmennskan hefst kl. 13. Liðstjórar staðfesta lið sín ekki seinna en kl. 12:45.
Boðið verður upp á 3 aldursflokka:
Opinn flokkur: Sigurvegari þessa flokks er Íslandsmeistari. 7 umferðir.
B flokkur: 4.–7. bekkur – 5-7 umferðir.
C flokkur: 1.–3. bekkur – allt að 5 umferðir.
Heimilt er að keppa upp fyrir sig í flokki.
Mótið er fyrir skákmenn fædda 2011 og síðar.
Tímamörk verða 8 mínútur + 3 sek. á hvern leik.
Þátttökugjöld eru 12000 kr. fyrir A-lið og 8.000 kr. fyrir hvert lið eftir það. Hámarksgjald fyrir félag er 30.000 krónur.
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra at-skákstiga. A- og B-lið hvers félags tefla saman í fyrstu umferð séu þau í sama flokki.
Skráningarfrestur liða er fimmtudagurinn 15. Október kl. 23:50. Skráning verður á skak.is (Guli kassinn)
Verðlaun og oddastig
Veitt verða verðlaun fyrir þrjár efstu sveitirnar í opnum flokki, B-flokki og C-flokki.
Oddastig séu sveitir jafnar að vinningum samkvæmt reglugerð um Íslandsmót barna- og unglingasveita.
Mótið fer að öðru leyti fram samkvæmt Reglugerð um Íslandsmót barna- og unglingasveita.













