Línur hafa nokkuð tekið að skýrast eftir tvöfaldan keppnisdag á laugardeginum tíunda/tíunda á Íslandsmóti Skákfélaga. Úrvalsdeildin er opin upp á gátt eftir að Blikar lögðu KR-inga að velli og mikilvæg viðureign á morgun þegar TR og KR mætast, efstu sveitirnar. Skákfélag Akureyrar náði í tröllvaxinn sigur gegn Víkingaklúbbnum og eru í bílstjórasætinu þegar kemur að keppninni um sæti í Úrvalsdeild að ári!

Úrvalsdeild

KR-ingar voru efstir með fullt hús en lentu í hörkuviðureign gegn Breiðablik. Óvenju mikið var um jafntefli og virtist eins og Blikar hefðu misst of mörg jafntefli niður á neðri borðunum þar sem þeir hefðu í raun átt að sækja vinningana. Á endanum var það Hilmir Freyr sem reyndist hetjan.

Hannes virtist hafa yfirburða tafl lengst af í uppgjör landsliðsmannana en Hilmir var sterkari í tímahrakinu og flækjunum í lokin og endaði á að ná kóngi hvíts í mátnet.

Þessi skák gæti talið ansi þungt þegar talið verður upp úr kössunum!

TR vann auðveldan sigur 7-1 gegn Vestmannaeyjum og Fjölnir slátruðu Garðbæingum sömuleiðis.

Mátstef dagsins fær Jón Trausti Harðarson úr Fjölni!

27.Dxh5!! skemmtilegur lokahnykkur en Magnus Carlsen tapaði netskák á dögunum þegar hann féll í sömu gildru!

Mótstafla

KR og TR eru efst en Fjölnir og Breiðablik lúra. Alvöru viðureign í 5. umferðinni þegar TR og KR mætast! Garðabær og Vestmannaeyjar munu berjast um fallið og líklegt að innbyrðis viðureign liðanna í seinni hlutanum skipti öllu nema liðin nái óvænt í punkta annarsstaðar.

Úrvalsdeild á chess-results

1. deild

Víkingaklúbburinn hafði farið með himinskautum og unnið báðar sínar viðureignir 6-0. Skákfélag Akureyrar var einnig með fullt hús stiga og sveitirnar mættust í hörkuviðureign í 3. umferð. Eftir æsispennandi viðureign náðu Akureyringar í gríðarlega mikilvægan sigur. Sveitirnar virðast í það miklum sérflokki að líklegast réðust úrslitin í deildinni í þessari viðureign!

Víkingar þurfa að treysta á að b-sveitir TR eða Blika nái að hjálpa þeim í baráttunni!

2. deild

B-sveit SA er en á toppnum með fullt hús stiga. Baráttan um annað sætið er hinsvegar gróthörð!

2.deild á chess-results

3. deild

SSON hafa forystu í deildinni en baráttan um næstu sæti er á milli 64MB og SA-c.

3.deild á chess-results

4. deild

Haukar og Snæfellingar hafa fullt hús og viðureign þeirra í næstu umferð gæti ráðið miklu.  Mosfellingar standa þokkalega að vígi í 3. sæti og bíða átekta!

Lokaumferð helginnar hefst kl. 11 í Menntaskólanum við Hamrahlíð á morgun, sunnudag!

- Auglýsing -