Björn Þorfinnsson tók þátt í hraðskáksmóti Biel-hátíðarinnar

EM taflfélaga hélt áfram í dag en önnur umferð mótsins var tefld í Budva í dag. Íslensku liðin unnu flest en Breiðablik varð þó að lúta í dúk gegn einni af bestu sveitum mótsins! Íslensku „málaliðarnir“ náðu aukinheldur ágætis úrslitum í dag!

Breiðablik fékk alvöru próf og mættu Alkaloid!

Borð Breiðablik A Alkaloid
1 GM Vignir Vatnar Stefánsson (2534) GM Arjun Erigaisi (2746)
2 IM Hilmir Freyr Heimisson (2365) GM Wei Yi (2758)
3 FM Birkir Ísak Jóhannsson (2306) GM Aravindh Chithambaram (2677)
4 FM Bárður Örn Birkisson (2264) GM Abhimanyu Puranik (2622)
5 CM Benedikt Briem (2239) GM Velimir Ivić (2581)
6 CM Björn Holm Birkisson (2234) GM Zvonko Stanojoski (2371)

Skemmst er frá því að segja að 0-6 ósigur varð niðurstaðan en á ýmsu gekk!

Vignir mætti Arjun Erigaisi. Byrjanataflmennskan frumleg en sá indverski tefldi nánast eins og tölva alla skákina!

Hilmir mætti kandídatanum Wei Yi og hafði hvítt. Sá kínverski fann bombu í 18. leik en án hennar er hvíta staðan mögulega bara betri!

18…Rxa2!! reyndist frábær leikur og sá kínverski vann!

Akureyri 3½–2½ SK Radnicki

Hörkuviðureign þar sem andstæðingar Akureyringa voru flestir rétt undir 1,5 meter á hæð og við fermingaraldur! Eftir grjótharða viðureign sem stefndi í jafntefli náði Gauti Páll að bjarga glötuðu endatafli fullt af peðum undir og tryggja sigurinn í viðureigninni. Rétt er að benda á þétta framistöðu hjá liðsstjóranum Halldóri B. sem tefldi algjör módelskák gegn sínum andstæðingi!

Borð Akureyri Úrslit SK Radnicki
1 GM Margeir Pétursson (2386) 0–1 FM Aliaksei Kramich (2295)
2 FM Rúnar Sigurpálsson (2251) 1–0 Hleb Palkhouski (1753)
3 CM Magnús P. Örnólfsson (2143) 1–0 Kira Popova (1765)
4 Gauti Páll Jónsson (2121) ½–½ Yaroslav Popov (1588)
5 CM Halldór Halldórsson (2078) 1–0 Atharv Bansal (1967)
6 Stefan S. Bergsson (2114) 0–1 CM Indra Reddy Patlolla (2024)

Akureyringar unnu því góðan 3½–2½ sigur

Breiðablik B 3½–2½ Sharks 4NCL

Blikar lentu líka í hörkuviðureign. Staðan jöfn 2,5-2,5 en David Kolka var síðastur að klára og lagði FIDE meistara að velli með þéttum peðamassa í hróksendatafli.

Borð Breiðablik B Úrslit Sharks 4NCL
1 Stephan Briem (2154) 0–1 IM Peter T. Roberson (2438)
2 Arnar M. Heiðarsson (2104) ½–½ FM James P. Holland (2239)
3 Davíð Kolka (2043) 1–0 FM Liam D. Varnam (2106)
4 Markus O. Jóhannsson (1982) 1–0 CM Stephen A. J. Whatley (2145)
5 Birkir Hallmundarson (1888) 1–0 Kevin C. McCarthy (1898)
6 WFM Guðrún F. Briem (1927) 0–1 CM Harry Bryant (2099)

Breiðablik B vann einnig 3½–2½, þar sem sigur á 3., 4. og 5. borði reyndist dýrmætur

Víkingur 4–2 S.S. Lazio Scacchi

Fínn sigur hjá Víkingaklúbbnum gegn efnilegum Ítölum!

Borð Víkingur Úrslit S.S. Lazio Scacchi
1 IM Tapani Sammalvuo (2363) 1–0 FM Marco Corvi (2216)
2 FM Páll A. Þórarinsson (2172) 0–1 Samuele F. Guido Guerriero (1958)
3 CM Jón Árni Halldórsson (2037) 1–0 Marco Tinari (1832)
4 CM Gunnar Rúnarsson (2001) 0–1 Maddalena Corvi (1974)
5 Sigurbjörn Hermannsson (1917) 1–0 Andrea Aceto (1771)
6 Sigurður Ingason (1820) 1–0 Roberto Condorelli (1645)
  • IM Björn Þorfinnsson (Cheddleton Savills Caterling, England) náði góðum sigri í sinni skák.
  • Ásta Kristbjörnsdóttir (She Plays To Win Lionesses B, England, kvennaflokkur) tapaði peði snemma í sinni skák og náði aldrei að rétt almennilega úr kútnum.
  • Ingvar Þór Jóhannesson tefldi sína fyrstu skák í dag gegn hinum margreynda stórmeistara Zbynek Hracek. Ingvar tefldi af öryggi og ruggaði engum bátum með hvítu mönnunum og náði í fínt jafntefli.

    Í þriðju umferð á morgun mæta Akureyri sveit Perfect frá Moldavíu. Breiðablik fær sænska sveit sem þeir ættu að vinna en Breiðablik-b og Víkingar fá stigahærri sveitir. Björn, Ingvar og Ásta tefla svo líka með sínum sveitum á morgun!

    - Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn