Fimmta umferð var tefld í gær á EM taflfélaga í Búdva í Svartfjallalandi. A-sveit Breiðabliks og Akureyringar voru fremst í flokki íslensku liðanna en töpuðu bæði hörkuviðureignum með minnsta mun 2,5-3,5. Breiðablik-b náði í mjög góðan sigur gegn Kingston Kings, liði Ingvars og Víkingaklúbburinn lagði írska sveita að velli.

Schachfreunde Berlin 1903 – Breiðablik A 3½–2½

A-lið Breiðabliks mætti sterku liði Schachfreunde Berlin og tapaði naumlega, 2½–3½. Vignir Vatnar Stefánsson vann góðan sigur á fyrsta borði gegn IM Marius Fromm. Birkir Ísak Jóhannsson, Bárður Örn Birkisson og Björn Hólm Birkisson gerðu jafntefli, en Hilmir Freyr Heimisson og Benedikt Briem töpuðu sínum skákum.

Sigurskák Vignis með svörtu var góð og er hér að neðan:

Borð Schachfreunde Berlin 1903 Úrslit Breiðablik A
1 IM Marius Fromm (2449) 0–1 GM Vignir Vatnar Stefánsson (2534)
2 IM Magnus Ermitsch (2438) 1–0 IM Hilmir Freyr Heimisson (2365)
3 IM Emil Schmidek (2427) ½–½ FM Birkir Ísak Jóhannsson (2306)
4 FM Tymon Czernek (2419) ½–½ FM Bárður Örn Birkisson (2264)
5 IM Arnd Lauber (2393) 1–0 CM Benedikt Briem (2239)
6 IM Sebastian Poltorak (2401) ½–½ CM Björn Hólm Birkisson (2234)

Lokatölur: Schachfreunde Berlin 1903 3½–2½ Breiðablik A


Breiðablik B – Kingston Kings 3½–2½

B-lið Breiðabliks vann mjög góðan 3½–2½ sigur á Kingston Kings. Markus Orri Jóhannsson, Birkir Hallmundarson og Guðrún Fanney Briem unnu á þremur neðstu borðunum og Stephan Briem gerði jafntefli við GM Daniel Howard Fernandez á fyrsta borði.

Borð Breiðablik B Úrslit Kingston Kings
1 Stephan Briem (2154) ½–½ GM Daniel Howard Fernandez (2530)
2 Arnar Milutin Heiðarsson (2104) 0–1 GM Shreyas Royal (2533)
3 Davíð Kolka (2043) 0–1 CM Avyukt Dasgupta (2149)
4 Markus Orri Jóhannsson (1982) 1–0 Raman Vashisht-Pigem (2140)
5 Birkir Hallmundarson (1888) 1–0 Zain Patel (2080)
6 WFM Guðrún Fanney Briem (1927) 1–0 Sebastian Mokhber-Garcia (2020)

Lokatölur: Breiðablik B 3½–2½ Kingston Kings


Mimoza – Akureyri 3½–2½

Akureyringar töpuðu naumlega, 2½–3½, gegn Mimoza. Halldór Halldórsson og Áskell Örn Kárason unnu sínar skákir og Stefan Steingrímur Bergsson gerði jafntefli. Mimoza hafði hins vegar betur á þremur efstu borðunum og það réð úrslitum.

Borð Mimoza Úrslit Akureyri
1 IM Milos Stankovic (2413) 1–0 GM Margeir Pétursson (2386)
2 FM Andrej Sukovic (2306) 1–0 FM Rúnar Sigurpálsson (2251)
3 IM Dusan Lekic (2227) 1–0 CM Magnús P. Örnólfsson (2143)
4 IM Slavisa Milanovic (2269) 0–1 CM Halldór Halldórsson (2078)
5 IM Jovan Todorovic (2334) ½–½ Stefan Steingrímur Bergsson (2114)
6 AFM Zoran Lazarevic (1933) 0–1 IM Áskell Örn Kárason (2135)

Lokatölur: Mimoza 3½–2½ Akureyri


St Benildus – Víkingur 2–4

Víkingar sneru aftur á sigurbraut með góðum 4–2 sigri á írska liðinu St Benildus. Páll A. Þórarinsson, Halldór Pálsson og Sigurbjörn Hermannsson unnu sínar skákir en Tapani Sammalvuo og Jón Árni Halldórsson gerðu jafntefli. Sigurbjörn að eiga ansi gott mót það sem af er!

Borð St Benildus Úrslit Víkingur
1 FM Stephen Brady (2271) ½–½ IM Tapani Sammalvuo (2363)
2 Leon Putar (1913) 0–1 FM Páll A. Þórarinsson (2172)
3 Luke Hayden (1847) ½–½ CM Jón Árni Halldórsson (2037)
4 Odhran McDonnell (1833) 0–1 Halldór Pálsson (1991)
5 William Kenny (1812) 0–1 Sigurbjörn Hermannsson (1917)
6 Kevin A. Burke (1917) 1–0 Sigurður Ingason (1820)

Lokatölur: St Benildus 2–4 Víkingur

Íslensku liðin unnu því tvær viðureignir í 5. umferð. Breiðablik B vann Kingston Kings 3½–2½ og Víkingur lagði St Benildus 4–2, en bæði A-lið Breiðabliks og Akureyri töpuðu naumlega, 2½–3½.

Blikar fá Hillerod frá Danmörku þar sem Vignir mætir stórmeistaranum Sune Berg Hansen. Blikar stigahærri á flestum borðum. Breiðablik-b mæta Dardania frá Kósóvó og Akureyri mætir LSG frá Hollandi. Loks mæta Víkingar liði Gambit Bonnevoie frá Lúxemborg.

Á toppnum mætast Superchess og Novy Bor í allt að því hreinni úrslitaviðureign!

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn