Kópavogsmót grunnskólasveita í skák fór fram í fyrsta sinn miðvikudaginn 14. október í Stúkunni við Kópavogsvöll. Skákdeild Breiðabliks stóð fyrir mótinu og bauð öllum grunnskólum í Kópavogi að senda sveitir. Sex skólar þáðu boðið og alls mættu 24 sveitir, um hundrað krakkar, til leiks þrátt fyrir gula veðurviðvörun um morguninn.
Teflt var í tveimur flokkum, 1.–4. bekk fyrir hádegi og 5.–10. bekk eftir hádegi. Fjórir eru í hverri sveit, umhugsunartími var fjórar mínútur á mann með einnar sekúndu viðbót á leik og samanlagðir vinningar sveitarinnar réðu röðinni.

1.–4. bekkur: Vatnsendaskóli vann allar viðureignir

Átta sveitir tefldu fimm umferðir í yngri flokknum. Vatnsendaskóli var í sérflokki, vann allar fimm viðureignir sínar og tapaði aðeins einni og hálfri skák af tuttugu.

Lokastaða

  1. Vatnsendaskóli – 18,5 vinningar af 20 mögulegum
  2. Hörðuvallaskóli A – 11,5 vinningar
  3. Lindaskóli – 11 vinningar
  4. Hörðuvallaskóli D – 10,5 vinningar
  5. Hörðuvallaskóli B – 10 vinningar
  6. Álfhólsskóli A – 7,5 vinningar
  7. Álfhólsskóli B – 7 vinningar
  8. Hörðuvallaskóli C – 4 vinningar

Hörðuvallaskóli A tryggði sér annað sætið með sigri á Álfhólsskóla B í lokaumferðinni, og Lindaskóli vann sína síðustu viðureign 4–0 og skaust í þriðja sætið.

Lindaskóli, 3. sæti í 1.–4. bekk.
Hörðuvallaskóli A, 2. sæti í 1.–4. bekk.

5.–10. bekkur: Álfhólsskóli A ósigraður

Sextán sveitir tefldu fjórar umferðir í eldri flokknum, þar af níu frá Hörðuvallaskóla einum. Álfhólsskóli A vann þrjár viðureignir 4–0 og gerði jafntefli við Lindaskóla í þriðju umferð í viðureign sem réði úrslitum um sigurinn. Lindaskóli varð annar, einum vinningi á eftir, og Álfhólsskóli B þriðji.

Álfhólsskóli A, Kópavogsmeistarar grunnskólasveita í 5.–10. bekk 2026.

Lokastaða

  1. Álfhólsskóli A – 14 vinningar af 16 mögulegum
  2. Lindaskóli – 13 vinningar
  3. Álfhólsskóli B – 11 vinningar
  4. Vatnsendaskóli B – 10 vinningar
  5. Kársnesskóli – 10 vinningar
  6. Vatnsendaskóli A – 10 vinningar
  7. Kóraskóli – 8 vinningar
  8. Hörðuvallaskóli A – 7,5 vinningar
  9. Hörðuvallaskóli I – 7 vinningar
  10. Hörðuvallaskóli C – 7 vinningar
  11. Hörðuvallaskóli F – 6,5 vinningar
  12. Hörðuvallaskóli B – 6 vinningar
  13. Hörðuvallaskóli D – 6 vinningar
  14. Hörðuvallaskóli E – 5 vinningar
  15. Hörðuvallaskóli H – 4,5 vinningar
  16. Hörðuvallaskóli G – 2,5 vinningar

Kársnesskóli, Kóraskóli, Vatnsendaskóli og Hörðuvallaskóli áttu einnig sveitir í eldri flokknum. Hörðuvallaskóli sendi flesta keppendur allra skóla til leiks, alls þrettán sveitir í báðum flokkum samanlagt.

Lindaskóli, 2. sæti í 5.–10. bekk.
Álfhólsskóli B, 3. sæti í 5.–10. bekk.

Skákæfingar í Kópavogi

Skákdeildir Breiðabliks og HK halda úti skákæfingum fyrir alla aldurshópa í Kópavogi, og öll sem tóku þátt í mótinu eru velkomin að prófa.
Skákdeild HK í Kórnum, beint eftir skóla, steinsnar frá Hörðuvallaskóla og Kóraskóla. Skráning á abler.io/shop/hk.
Hópur Dagar Tími
1.–3. bekkur Þriðjudagar og miðvikudagar 14:00–15:00
4.–7. bekkur Miðvikudagar og föstudagar 15:00–16:00

Skákdeild Breiðabliks í Stúkunni við Kópavogsvöll. Skráning á xps.is/shop/breidablik.
Hópur Dagar Tími
1.–3. bekkur Mánudagar 16:30–17:30
1.–3. bekkur Laugardagar 10:00–11:00
4.–7. bekkur Þriðjudagar 17:00–18:30
4.–7. bekkur Fimmtudagar 17:30–19:00
4.–7. bekkur Föstudagar 17:00–18:30
Framhaldshópur, lengra komin 5.–10. bekkur Mánudagar og miðvikudagar 17:30–19:00
Framhaldshópur, lengra komin 5.–10. bekkur Föstudagar 17:00–18:30
8. bekkur og eldri Laugardagar 11:00–12:30

Nánari upplýsingar veitir Benedikt Briem, yfirþjálfari, í síma 615 6007 eða á briembenni@gmail.com.

Öll úrslit eru á chess-results.com:

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn