Gamla gengið Ingvar og Björn Ívar.

Úrslitakeppni Íslandsmóts Símans í netskák 2026 heldur áfram á sunnudaginn 1. nóvember með tveimur síðustu viðureignum í átta manna úrslitum. Taflmennska hefst kl. 15:00. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport og einnig er hægt að fylgjast með á YouTube- og Twitch-rásum RÍSÍ.

Fyrri viðureign dagsins er FM Jón Kristinn Þorgeirsson gegn GM Vignir Vatnar Stefánsson. Að henni lokinni mætast GM Bragi Þorfinnsson og IM Hilmir Freyr Heimisson. Tefldar verða sex skáka einvígi. Sá sem fyrr nær 3½ vinningi vinnur; verði jafnt er teflt til þrautar.

Skákskýrendur verða BÍx2, þ.e. Birkir Ísak og Björn Ívar.

Fyrri úrslit í átta manna úrslitum

Á sunnudaginn 25. október tryggðu IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson og GM Jóhann Hjartarson sér sæti í undanúrslitum. Aleksandr lagði Helga Áss Grétarsson að velli og Jóhann vann Sigurbjörn Björnsson.

Átta manna úrslit

  • GM Jóhann Hjartarson – FM Sigurbjörn Björnsson (25. okt.) 3½-1½
  • IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson – GM Helgi Áss Grétarsson (25. okt.) – 4-3
  • FM Jón Kristinn Þorgeirsson – GM Vignir Vatnar Stefánsson (1. nóv.)
  • GM Bragi Þorfinnsson – IM Hilmir Freyr Heimisson (1. nóv.)

Sigurvegarar mætast í undanúrslitum sunnudaginn 8. nóvember og úrslitin fara fram 15. nóvember.

Mótið er skipulagt af Rafíþróttasambandi Íslands í samstarfi við Skáksamband Íslands og Sjónvarp Símans. Verðlaunafé er 125.000 kr. fyrir fyrsta sæti, 75.000 kr. fyrir annað sæti og 25.000 kr. fyrir þriðja og fjórða sæti.

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn