Fyrrverandi heimsmeistari kvenna, Nona Gaprindashvili, slapp með skrekkinn í 5. umferð á á Heimsmeistaramót öldunga í skák í Vrnjačka Banja í Serbíu. Nona hafði þá svart gegn Guðlaugu Þorsteinsdóttur sem hafði á tíma unnið tafl en á endanum slapp Nona með jafnteflið! Hannes náði sér í sigur eftir tvö jafntefli og Henrik vann einnig sína skák.
Opinn flokkur 50+ (124 keppendur)

Hannes hafði svart gegn spænskum alþjóðlegum meistara og fékk fljótt þægilegt tafl. Segja má að tefldur hafi verið Benoni með skiptum litum. Hannes pakkaði þeim spænska saman í kjölfarið og vann í aðeins 26 leikjum.
Hannes hefur 4 vinninga eftir þennan sigur.
Henrik Danielsen náði í góðan tæknisigur með hvítu mönnunum og er að rétta úr kútnum eftir rólega byrjun.
Henrik hefur 3,5 vinning.
- GM Henrik Danielsen – er sá fimmti sigahæsti með 2472 skákstig
- GM Hannes Hlífar Stefánsson – er sá tíundi stigahæsti með 2401 skákstig.
Meðal annarra keppenda eru GM Murtas Kazhgaleyev (KAZ, 2532), GM Kiril Georgiev (BUL, 2512), GM Jean-Marc Degraeve (FRA, 2485) og GM Michele Godena (ITA, 2447).
Konur 65+ (29 keppendur)
Guðlaug fékk þann heiður að mæta fyrrverandi heimsmeistara kvenna, Nonu Gaprindashvili. Nona vissulega komin af sínu léttasta skeiði en kann ennþá mannganginn betur en margir. Upp kom kóngsindversk vörn og hafði Guðlaug gott tak á stöðunni lengst af.
Nona gaf peð í miðtaflinu til að blíðka goðin og treysti á gott hald á svörtu reitunum. Kóngsstaða svarts varð hinsvegar mjög varhugaverð og var Guðlaug komin með mátsókn og vantaði örlítið upp á til að klára dæmið. Sú georgíska rétt slapp af önglinum og náði að öngla saman jafntefli í endataflinu þegar kom að lokauppgjöri.
Sigurlaug sat hjá í umferðinni.
Gauðlaug hefur 3 vinninga og Sigurlaug hefur 1,5 vinning.
- WFM Guðlaug Þorsteinsdóttir – 13. stigahæst með 1994 skákstig
- Sigurlaug Regina Friðþjófsdóttir – 26. stigahæst með 1713 skákstig.
Í þessum flokki er goðsögnin GM Nona Gaprindashvili (GEO, 2168) stigahæst. Nona er auðvitað fyrrverandi heimsmeistari kvenna og var meðal keppenda á fyrsta Reykjavíkurskákmótinu 1964! Þess má geta að meðal keppenda í 50+ er sjálf GM Pia Cramling!
Úrslit 5. umferðar:
Pörun 6. umferðar:
Hannes, Henrik og Guðlaug verða í beinni útsendingu en vakin skal athygli á því að á morgun, sunnudag, er frídagur líkt og á EM ungmenna. Taflmennskan heldur áfram á mánudaginn!
Mótið stendur til 14. nóvember og er teflt er í fjórum flokkum. Tæplega 400 keppendur taka þátt og þar af fjórir Íslendingar. Tveir í 50+ flokknum og tvær í 65+ flokki kvenna.
Tenglasafn
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results – Íslendingar
- Opinn 50+ – chess-results
- Konur 65+ – chess-results
- Beinar útsendingar á Lichess
















