Lokaumferð Heimsmeistaramóts öldunga í skák í Vrnjačka Banja í Serbíu var tefld í dag. Hannes Hlífar vann sína skák í lokaumferðinni og gat með hagstæðum úrslitum náð upp á pall en varð að gera sér 4. sætið að góðu. Í 65+ flokki kvenna gerði Guðlaug Þorsteinsdóttir sterkt jafntefli með svörtu og endaði í topp 10. Henrik og Sigurlaug unnu einnig sínar skákir og umferðin því með besta móti!
Opinn flokkur 50+ (124 keppendur)
Hannes hafði svart gegn Jean Marc-Degreave en ótrúlegt en satt þá mætti Hannes sama skákmanni þegar hann varð heimsmeistari U16 árið 1987 sællar minningar! Aftur náði Hannes að leggja hann að velli í baráttuskák.
Lengst af virtist jafntefli líklegast en frípeðasveit Hannesar á miðborðinu óx ásmegin þegar leið á og náði Hannes loks að knýja Frakkann til uppgjafar!
Hannes náði þar með upp í 8 vinninga en því miður dugði það ekki til að komast í topp 3. Hannes fékk hinsvegar ágætis peningaverðlaun engu að síður og má vel við una, taplaus á mótinu og hækkar á stigum. Mögulega vantaði nokkrar ferðir í lausamölina í einhverjum skákum til að ýta Hannesi yfir endamörkin!
Henrik Danielsen vann sína skák en var ekki á „live“ borði.

Kazhgaleyev tók Heimsmeistaratitilinn en Hannes endar í 4. sæti á stigum, aðeins hálfum vinningi á eftir efsta sæti og taplaus. Henrik átti ekki gott mót og tapar stigum á mótinu.
Konur 65+ (29 keppendur)
Guðlaug stýrði svörtu mönnunum gegn Elenu Krasenkowu og varðist mjög vel. Sú pólska fékk mikið rými en staðan var lokuð og engin leið í gegn, varnir Gullu héldu nokkuð auðveldlega!
Mjög fín úrslit hjá Guðlaugu sem endar á topp 10 á mótinu!
Sigurlaug vann sína skák og endar mótið vel!

Báðar hækka þær á stigum á mótinu. Sú rússneska Strutinskaia vann yfirburðasigur á mótinu!
Úrslit 11. umferðar:


Tæplega 400 keppendur tóku þátt og þar af fjórir Íslendingar. Tveir í 50+ flokknum og tvær í 65+ flokki kvenna.
Tenglasafn
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results – Íslendingar
- Opinn 50+ – chess-results
- Konur 65+ – chess-results
- Beinar útsendingar á Lichess















