Jólaskákmót grunnskóla Reykjavíkur verður haldið í húsnæði TR að Faxafeni 12 sunnudaginn 13. desember.
Mótið er sem fyrr samstarfsverkefni Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur. Mótinu verður skipt í þrennt; 1.-3. bekkur, 4.-7. bekkur og 8.-10. bekkur.
Tefldar verða 6 umferðir með umhugsunartímanum 5 mínútur fyrir hverja skák og bætast 3 sekúndur við eftir hvern leik (5+3). Allir grunnskólar Reykjavíkurborgar eru hvattir til þess að senda skáksveitir í mótið.
Hver skóli getur sent þrjár skáksveitir (lið) í hvern aldursflokk og er skáksveitum hvers skóla styrkleikaraðað með bókstöfum (a-sveit, b-sveit, c-sveit). Í hverri skáksveit tefla 4 keppendur og má hver sveit hafa 0-2 varamenn. Keppanda er heimilt að tefla í eldri flokki en aldur hans segir til um, en þó má einungis tefla í einum flokki (sem dæmi þá má keppandi í 3.bekk tefla í flokki 4.-7.bekkjar, en hann getur þá ekki teflt í flokki 1.-3.bekkjar).
Mikilvægt er að liðsstjóri fylgi liðum hvers skóla.
Dagskrá mótsins:
- Sun 13. des kl. 09:30 – 12:00– 1.-3. bekkur.
- Sun 13. des kl. 12:30 – 15:00– 4.-7. bekkur.
- Sun 13. des kl. 15:30 – 18:00– 8.-10. bekkur.
Verðlaun:
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki. Einnig hlýtur b-sveit hvers flokks verðlaun.
Skráning fer fram í gegnum skráningarform sem finna má í gula kassanum á skak.is. Skráningu lýkur laugardaginn 13. desember klukkan 20:00. Ekki verður hægt að skrá lið á mótsstað.
Mælst er til þess að liðsstjórar og keppendur mæti tímanlega svo mótahald geti hafist á tilsettum tíma.
Með þátttöku staðfesta keppendur að þeir leyfi myndatökur og birtingu mynda frá mótinu á skak.is, heimasíðu Taflfélagsins og á samfélagsmiðlum Taflfélags Reykjavíkur.
Veitingasala verður á staðnum














