Hinn ungi norski stórmeistari Aksel Bu Kvaloy hefur tekið forystuna á Minningarmótinu um Friðrik Ólafsson en hann lagði Vigni Vatnar Stefánsson að velli í 3. umferðinni, seinni umferð dagsins. Aksel er því efstur með 3 vinninga en á hæla hans koma fjórir skákmenn með 2,5 vinning, þar á meðal Íslandsmeistarinn Hilmir Freyr Heimisson.
Rennum fyrst yfir gang mála í fyrri umferð dagsins, 2. umferð.
Vignir mætti stórmeistaranum Guðmundi Kjartanssyni á efsta borði og hafði svart. Upp kom nokkuð nýmóðins lína gegn Reti-byrjun og segja má að um sé að ræða nokkurs konar Jobava-London með skiptum litum.
Vignir fékk mjög hættuleg færi á kóngsvæng og eftir að Guðmundur fann ekki bestu tölvulínuna í 21. leik fékk Vignir nánast óstöðvandi sókn og á endanum sigldi Vignir vinningnum heim.
Af efstu mönnum náðu Kvaloy og Schitco að fylgja Vigni eftir.
Kvaloy tók yfirhöndina í miðtaflinu eftir að Bárður missti af sínum færum.
Ivan vann einnig nokkuð auðveldan sigur, byrjanataflmennska Birkis fór úrskeiðis.
Lutjen hefði átt að bætast í hópinn en missti af vinningi alveg í lokin gegn Risteski.
Sá færeyski lék 57.Ke2 og sættist á jafntefli. 57.Kf4! er hinsvegar unnið. Málið er að eftir t.d. 57…Dc3 58.De7! má hvítur fara til baka á h2 með kónginn og vinnur svo með Df8+ og a-peðið rennur upp.
Björn Þorfinnsson slapp með skrekkinn gegn Ahn og náði fram hefndum frá síðustu kappskák þeirra sem endaði með jafntefli.
Björn missti einbeitinguna og lék 20…Re4?? og hreinlega gleymdi að drepa fyrst á g2. Björn náði sem betur fer manninum til baka en Ahn hefði getað pínt Björn í mislitu biskupa endatafli með nákvæmustu taflmennsku en þess í stað komst Björn í gegn með fallegu gegnumbroti.
31…Hxf4! og hvíta staðan hrynur!
Að loknum tveimur umferðum voru því þeir Vignir, Kvaloy og Schitco enn með fullt hús.

Vignir mættir Kvaloy á efsta borði í 3. umferðinni. Vignir var greinilega betur undirbúinn sem skilaði sér í góðu tímaforskoti en staðan hélt hinsvegar vel hjá Norðmanninum. Í miðtaflinu missti Vignir tökin og lenti peði undir í endatafli sem hann náði ekki að verja.
Schitco og Kaasen skildu jafnir á öðru borði en Risetski jafnaði við efstu menn með því að leggja Lenku að velli. Makedóninn tefldi í kringum svart peð á d3 hjá Lenku og á endanum náði hann eigin peði, völduðu á e6 reitnum og reyndist það hættulegra!
Björn fór í of umfangsmiklar aðgerðir gegn Lutjen frænda
Löng hrókun og rangstæð drottning á a3 reyndist hvítu stöðunni ofviða. Hér kom 16…Ra7!? sem skilur drottninguna eftir oní en hvítur getur ekki þegið drottninguna vegna máts á e2. 17.Bf1 Bd3 18.Bg3 Rb5! fangaði hvítu drottninguna þar sem 19.Db4 er svarað með 19…Rd5 og því fátt eftir um fína drætti hjá hvítum.
Halldór kórónaði fínan skákdag með því að leggja Guðmund Kjartansson að velli. Báðir keppendur gerðu mistök í flókinni stöðu en síðasti afleikurinn lenti hjá svörtum og Halldór kláraði…
33.Dxe2 Dxe2 34.Hf8 og mát!
Staðan

Norðmaðurinn einn með fullt hús en pakkinn þéttur fyrir aftan
Pörun 4. umferðar

Normaðurinn mætir Mývatnssveitar-meistaranum frá síðustu helgi og Hilmir hefur hvítt gegn Risteski. Aftur er tefld tvöföld umferð á morgun, 4. umferð klukkan 10:00 og 5. umferð klukkan 16:00.























