Símon að tafli á EM ungmenna 2017. Mynd: http://youngchess.com/

Fjórða umferð Skákþings Akureyrar var var tefld á fimmtudaginn – 24. janúar. Úrslit:

  • Arnar Smári-Benedikt 0-1
  • Smári-Sigurður 1-0
  • Andri-Símon 0-1
  • Stefán-Rúnar – verður tefld 28. jan.

Mest spennandi var viðureign efstu manna, Andra og Símonar. Sá síðarnefndi kom á óvart með því að beita hollenskri vörn og náði snemma að jafna taflið.  Í miðtaflinu tók svartur svo öll völd og vann snaggaralega.

Smári fékk snemma heldur vænlegra taflæ gegn Sigurði sem fékk ekki varist snarpri kóngssókn þess fyrrnefnda.

Yngissveinar Arnar og Benedikt tefldu tvísýna skák þar sem sá síðarnefndi gaf tvo menn fyrir hrók og tvö peð. Arnar geystist í kóngssókn sem þó skilaði litlu og þegar hann á örlaga stundu gat tryggt sér jafna stöðu eftir drottningakaup, sá hann hróksvinning í hillingum sem varð honum að falli.

Símon er nú einn efstur með 3,5 vinninga eftir fjórar skákir, en Rúnar fráfarandi meistari getur þó náð honum að vinningum með sigri í frestaðri skák. Á hæla Símonar koma svo þeir Andri og Smári með þrjá vinninga. Vafalaust mun baráttan um titilinn standa milli þessara fjögurra.

Í fimmtu umferð sem tefld verður á sunnudaginn eigast þessir við:

1 3 1297 Stefansson Benedikt Bjorgvinsson Andri Freyr 2003 8
2 4 2266 FM Sigurpalsson Runar Signyjarson Arnar Smari 1351 2
3 5 1845 Eiriksson Sigurdur Jonsson Stefan G 0 1
4 6 2064 Thorhallsson Simon Olafsson Smari 1940 7

Af heimasíðu SA

- Auglýsing -