Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson (2403) endaði í 4.-7. sæti á alþjóðlega mótinu í Kragaeyju í Noregi sem lauk í gær. Gummi hlaut 6½ vinning í skákunum níu.

Dagur Ragnarsson (2361), Vignir Vatnar Stefánsson og Bragi Þorfinnsson (2263) hlutu allir 5½ vinning. Dagur, sem byrjaði afar vel á mótinu, var afar nærri því að ná sínum lokaáfanga að alþjóðlegum meistaratitli.
HIlmir Freyr Heimisson (2394) hlaut 5 vinninga, Björn Hólm Birkisson (2078), Bárður Örn Birkisson (2078) og Gauti Páll Jónsson (2070) hlutu 4½ vinning. Stefán Bergsson (2172) hlaut 3½ vinning og Björgvin S. Guðmundsson (1941) og Jon Olav Fivelstadt (1900) hlutu 2½ vinning,

Veronika Steinunn Magnúsdóttir (1740) hlaut 6 vinninga í b-flokki og Þórður Guðmundsson (1548) 4 vinninga.
Sumir íslensku keppendanna hækkuðu vel á stigum. Þar eru fremstir í flokki: Dagur (+23), Björgvin (+21) Björn Hólm (+20), Guðmundur (+15), Vignir (+14).
Mótið í Kragayju var svokallað „turbo-skákmót“. Tefldar eru fimm umferðir á níu dögum.
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Beinar útsendingar (kl. 9 og 14:30)














