Hart barist! Mynd: GB

Víkingaklúbburinn hefur vinningsforskot á Fjölni fyrir lokaumferðina sem hefst kl. 17 í dag. Víkingarnir véluðu KR niður 8-0 í umferðinni áðan. Fjölnir vann öruggan 7-1 sigur á Breiðabliki, Bolungarvík og Reykjanesbæ. Huginn hefur svo öðrum hálfum vinningi þar á eftir góðan 5½-2½ á Taflfélagi Reykjavíkur.

Víkingar mæta b-sveit Taflfélags Reykjavíkur í umferðinni á eftir. Staða Víkinganna er ávallt sterk þar sem sveitin vinnur bæði Fjölni og Hugin á jöfnu í stigaútreikningi. Þeim dugar því að fá 1 vinningi minna en Fjölni og 1½ vinningi en Hugin til að hreppa bikarinn eftirsótta.

KR-ingar eru fallnir og flest bendir til þess að b-sveit Hugins fylgi þeim niður.

Staðan

Nánar á Chess-Results

2. deild

Henrik fyrir sterku liði Selfyssinga. Mynd: GB

Skákfélag Selfoss og nágrennis er efst í jafnri annarri deild. B-sveit Víkingaklúbbsins er í öðru sæti. Hrókar alls fagnaðar og Skákdeild Hauka er í 3.-4. sæti.

B-sveit Breiðabliks, Bolungarvíkur og Reykjanesbæjar og Vinaskákfélagið eru í fallsætunum.

Nánar á Chess-Results.

3. deild

B-sveit Taflfélags Garðabæjar hefur tryggt sér sigur í 3. deild. Mikil barátta er um hvaða sveit fylgir þeim upp. Taflfélag Vestmannaeyja, Taflfélag Akraness og Skáksamband Austurlands eru í 2.-4. sæti.

C- og d-sveitir Hugins eru fallnar niður í 4. deild. Óljóst er hvaða þriðja sveit fellur með þeim.

Nánar á Chess-Results.

4. deild

Svo mikil spenna að menn stóðu við skákborðið í 4. deild! Mynd: GB

B-sveitir Hróka alls fagnaðar og b-sveit KR eru efstar í 4. deild ásamt Ungmennasambandi Borgarfjarðar. Auk þeirra hefur aðeins d-sveit TR möguleika á sæti í 3. deild að ári.

Nánar á Chess-Results

- Auglýsing -