
Bæði íslensku liðin gerðu 2-2 jafntefli í sjöttu umferð HM öldungasveita í gær í hörku viðureignum. Ungmennaliðið (+50) gegn afar sterkri sveit Bandaríkjanna og Reynsluliðið (+65) gegn mjög þéttri sveit Finna.
Spennandi gegn Bandaríkjunum

Viðureignin gegn Bandaríkjunum var afar spennandi. Óhætt er að segja að íslenska liðið hafi sýnt mikla seiglu því á tímabili virtist liðið stefna í átt að sömu örlögum og lið Manchester United í gær, þ.e. að tapa 4-0. En okkar menn bitu heldur betur frá sér og náðu fræknu jafntefli.
Margeir Pétursson (2492) tapaði fyrir Jaan Ehlvest (2521) og um tíma virtist sem allir félagar hans gætu tapað. Jóhann Hjartarson (2520) snéri laglega á Igor Novikov (2563) og vann sigur í afar skemmtilegri skák sem skipti nokkrum sinnum um eigendur. Þröstur Þórhallsson (2425) átti skemmtilega riddarafórn sem bjargaði jafntefli gegn Alex Yermolinsky (2508). Skólastjórinn, Helgi Ólafsson (2506) var síðastur að klára. Sýndi afburðar endataflskunnáttu og mikla baráttu þegar hann hélt jafntefli gegn Joel Benjamin (2523).
Afar gott 2-2 jafntefli gegn Bandaríkjunum. Liðið er í sjötta sæti með 8 stig en veitt eru tvö stig fyrir sigur í viðureign og eitt fyrir jafntefli. Liðið mætir í dag sterkri sveit Armena sem eru næststigahæstir á pappírunum á eftir Bandaríkjamönnum. Goðsögnin, Rafael Vaganian (2535) teflir á fyrsta borði. Liðið er eingöngu skipað stórmeisturum.
Í dag kemur Jón L. Árnason kemur inn fyrir Margeir Pétursson.

Jafntefli gegn Finnum
Reynsluliðið (+65) gerði afar gott jafntefli við lið Finna í gær. Björgvin Víglundsson (2170) vann afar góðan seiglu sigur á þriðja borði gegn FIDE-meistaranum Harri Hurme (2148). Áskell Örn Kárason (2252) og Kristján Guðmundsson (2268) gerðu jafntefli gegn stórmeisturunum Heikki Westerinen (2286) og Yrjo Rantanen (2283). Bragi Halldórsson tapaði sinni skák.
Liðið er í þriðja sæti með 9 stig en þess má geta að liðið er aðeins það tíunda sterkasta miðað við skákstig.
Reynsluliðið mætir í dag sterkri sveit Þjóðverja sem er næststigahæsta liðið í keppninni. Stórmeistararnir Rainer Knakka (2482) og Lothar Vogt (2362) tefla á fyrsta og öðru borði. Áskell og Kristján þurfa því aftur að klást við stórmeistara.
Jón Kristinsson kemur inn fyrir Braga Halldórsson.

Umferð dagsins hefst kl. 12 og er hægt að fylgjast með báðum liðum beint.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar á Chess24 (hefjast kl. 12)















