Björn Þorfinnsson að tafli á Haustmótinu. Hann hefur slegið í gegn Facebook fyrir hressileg skrif um mótið.

Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson (2414) hlaut hálfan vinning í skákum gærdagsins á alþjóðlega mótinu í Dublin gegn tveim stórmeisturunum. Í fyrri skák dagsins gerði hann jafntefli við Serbann Aleksa Strikovic (2493) en í þeirri síðari tapaði hann fyrir hinum króatíska Ante Saric (2540) í hressilegri skák. Björn hefur hlotið 5½ vinning fyrir níundu og síðustu umferðina.

Páll Agnar Þórarinsson gerði jafntefli í báðum sínum skákum í gær og hefur 4½ vinning.

Lokaumferðin fer fram í dag og hefst kl. 12. Þá teflir Björn við skoska alþjóðlega meistarann Stephen Burns-Mannion (2285) en Páll við írska skákmeistarann Gavin Malaugh (2109).

Hyggst er að fylgjast með þeim félögum í beinni á Chessbomb og á Chess24.

- Auglýsing -