
Það gekk vel hjá íslensku liðunum á HM öldungasveita í gær á grísku eyjunni Ródos. Ungmennaliðið (+50) vann stórsigur, 3½-½ á Finnlandi. Margeir Pétursson, Jón L. Árnason og Þröstur Þórhallsson unnu allir en Jóhann Hjartarson gerði jafntefli við finnska stórmeistarann Jouni Yrjola (2327) á fyrsta borði.
Reynsluliðið (+65) vann sannfærandi, 2½-1½, á Svíþjóð þrátt fyrir að vera stigalægri á öllum borðum! Bragi Halldórsson vann en Áskell Örn Kárason, Kristján Guðmundsson og Björgvin Víglundsson gerðu jafntefli.
Reynsluliðið er í 3. sæti með 8 stig af 12 mögulegum. Liðið mætir sterkri sveit Finna í dag. Þar tefla á tveim efstu borðunum stórmeistararnir Heikki Westerinen (2286) og Yrjo Rantanen (2283).

Ungmennaliðið er í fjórða sæti með 7 stig. Þeir mæta í dag bandarsíska liðinu sem er afar öflugt en það hefur unnið allar sínar viðureignir. Stigahæsta liðið sem tekur þátt. Með því tefla fimm stórmeistarar og því má finna fyrrum ólympíumeistara. Afar mikilvæg viðureign uppá möguleika Íslands að berjast um efstu sætin.
Umferð dagsins hefst kl. 12 og er hægt að fylgjast með báðum liðum beint.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar á Chess24 (hefjast kl. 12)














