Björn Þorfinnsson (2414) vann báðar sínar skákir í alþjóðlega mótinu í Dublin. Fórnarlömb gærdagsins voru Ungverjinn Agoston Mikhalik (2203) og Írinn Colin Menzies (2183). Björn hefur 5 vinninga eftir 6 umferðir og er í 2.-8. sæti. Páll Agnar Þórarinsson gerði jafntefli í báðum sínum skákum í gær og hefur 4 vinninga.
Tvær umferðir eru tefldar í dag, páskadag. Sú fyrri hefst kl. 10 og sú síðari kl. 15:30. Björn mætir í fyrri umferð dagsins serbneska stórmeistaranum Aleksa Strikovic (2493) en Páll mætir Ítalanum Raffaele Buonanno (2091).
Hyggst er að fylgjast með þeim félögum í beinni á Chessbomb.
- Auglýsing -















