Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson (2414) gerði jafntefli við skoska alþjóðlega meistarann Stephen Burns-Mannion (2285) í níundu og síðustu umferð alþjóðlega mótsins í Dublin á Írlandi sem lauk í gær. Björn hlaut 5½ vinning og endaði í 9.-14. sæti. Hann hækkar lítis háttar á stigum.
Páll Agnar Þórarinsson (2246) gerði jafntefli í lokaumferðinni og endaði með 5½ vinning. Gerði jafntefli í fimm síðustu umferðunum – ávallt gegn stigalægri mönnum. Náði sér engan veginn á strik.
Ungverski stórmeistarinn Robert Ruck (2512) sigraði á mótinu.
- Auglýsing -















