Íslenskt mótahald dregst mikið saman á sumrin. Þá halda íslenskir skákmenn hins vegar í víking!
Á morgun hefst Norðurlandamótið í skák í Sarpsborg í Noregi. Tveir íslenskir fulltrúar taka þátt. Íslandsmeistarinn frá í fyrra, Helgi Áss Grétarsson og margfaldur Íslandsmeistari kvenna, Lenka Ptácníková.
HSG-mótið hefst í Hollandi á morgun. Þrír íslenskir fulltrúar taka þátt. Gauti Páll Jónsson, Héðinn Briem og Elvar Örn Hjaltason.
Gauti Páll teflir reyndar meira en allir aðrir í sumar, þar með talið atvinnumennirnir okkar, því hann tekur þátt í fjórum alþjóðlegum mótum í sumar. Hann teflir í Paracin í Serbíu í júlí ásamt Vigni Vatnari Stefánssyni og Arnari Milutin Heiðarssyni og RTU Open í Riga í ágúst ásamt Guðmundi Kjartanssyni og Stefán Bergssyni.
Íslandsmeistarinn þrettánfaldi, Hannes Hlífar Stefánsson, er skráður til leiks í tvö alþjóðleg mót. Annars var alþjóðlegt mót í Tékklandi í júní/júlí og hins vegar í Leiden í Þýskalandi í júlí.
Jóhann Hjartarson teflir á Xtracon-mótinu í Helsingör í júlí nk.
Fjórtán íslenskir fulltrúar taka þátt í EM ungmenna sem fram fer í Bratislava í ágúst nk.
Yfirlit yfir mót erlendis á næstunni sem Íslendingar taka þátt í
- 21.-23. júní HSG Open Gauti Páll, Héðinn Briem og Elvar Örn
- 21.-27. júní Norðurlandamótið í skák Sarpsborg, Noregi. Helgi Áss og Lenka.
- 29. júní – 7. júlí Chess Festival Ceske Budejovice Hannes Hlífar
- 5.-12. júlí Paracin 2019 Vignir, Gauti Páll og Arnar Milutin
- 12.-21. júlí Leiden Chess Tournament Hannes Hlífar
- 20.-28. júlí Xtracon Chess Open Jóhann Hjartarson
- 2.-10. ágúst EM ungmenna Íslenskir fulltrúar
- 3.-11. ágúst RTU Open Guðmundur Kja, Stefán Bergsson og Gauti Páll
- 16.-18. ágúst Hannefer ELO Sommer Open Gauti Páll
- 18.-22. ágúst Lviv Cup 2019 Íslenskir keppendur
- 6.-8. sep. NM barna- og grunnskólasveita Stokkhólmi, Hörðuvallaskóli fulltrúi Íslands
- 24. okt.-2. nóv. EM landsliða Ísland sendir lið í opinn flokk
- 29. okt.-5. nóv. Ólympíuskákmót 16 ára yngri. Tyrklandi. Ísland sendir lið
- 10.-16. nóv. EM taflfélaga Ulcinj, Svartfjallaland
- 12.-23. nóvember HM öldunga Bucharest, Rúmeníu
Allar upplýsingar um mót erlendis sem Íslendingar taka þátt í sumar má senda til ritstjóra.













