Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2562) tapaði í sjöttu umferð alþjóðlega mótsins í Leiden í Hollandi í gær. Einkar óheppinn hann Hannes í gær því hann gaf með unnið tafl.
Hannes hefur 2½ eftir umferðirnar sex. Sjöunda umferð fer fram í dag og hefst kl. 17. Þá teflir hann við bosníska stórmeistarann Predrag Nikolic (2574).
Hannes teflir í 10 manna lokuðum flokki. Meðalstigin eru 2495 skákstig. Hannes er þriðji stigahæstur keppenda.
- Heimasíða mótsins
- SwissMaster (áþekkt Chess-Results)
- Beinar útsendingar (yfirleitt 11 eða 15)
- Auglýsing -


















