Kovolenko ásamt forseta lettneska skáksambandsins og Dvorkovich forseta FIDE. Mynd: Heimasíða mótsins.

Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2461) hlaut 7½ vinning í 13 umferðum á hraðskákmóti minningarmótins um Tal og endaði í 61. sæti eftir töp í tveim síðustu umferðunum.

Lettneski stórmeistarinn Igor Kovalenko (2627) sigraði á mótinu.

Helgi Áss heldur áfram taflmennsku í sumar. Hann getur þátt í öðru móti í Riga í ágúst. Þar verða Guðmundur Kjartansson, Stefán Steingrímur Bergsson og Gauti Páll Jónsson einnig meðal keppenda.

Upplýsingar um árangur Helga má finna á Chess-Results.

- Auglýsing -