Jóhann að tafli í gær. Mynd: Heimasíða mótsins.

Stórmeistarinn Jóhann Hjartarson (2513) hefur fullt hús eftir þrjár umferðir á Xtracon-mótinu á Helsingjaeyri. Guðmundur Kjartansson (2470) hefur 2½ vinning og Hilmir Freyr Heimisson (2270) hefur 2 vinninga.

Enn hafa þeir þremenningarnir eingöngu teflt við stigalægri andstæðinga og svo verður einnig í fjórðu umferð í dag.

Umferð dagsins byrjar kl. 11:15.

- Auglýsing -