FIDE-meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2293) hlaut 1½ vinning í tveim skákum gærdagsins á Glorney Gilbert-áfangamótinu sem fram fer í Refadal á Írlandi. Vignir hefur byrjað afskaplega vel og hefur 4 vinninga eftir 5 skákir.
Vignir gerði jafntefli við írska FIDE-meistarann Conor O´Donnel (2341) í fyrri skák gærdagsins en vann enska alþjóðlega meistarann Joseph McPhillips (2412) í þeirri síðari.
Vignir mætir annars vegar írska FIDE-meistaranum Tom O´Gorman í dag og hins vegar enska alþjóðlega meistaranum Gavin Wall (2311).
Yfirlit yfir úrslit mótsins má finna hér.
Um er að ræða „túrbó-mót“. Níu umferðir tefldar á 5 dögum.
Meðalstig flokksins eru 2170 skákstig. Vignir er fjórði stigahæsti keppandi mótsins
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 9 og 14)
Xtracon-mótið
Það gekk ekki vel hjá íslensku keppendum í fjórðu umferð Xtracon-mótsins á Helsingjaeyri sem fram fór í gær. Guðmundur Kjartansson (2470) og Hilmir Freyr Heimisson (2279) gerðu jafntefli en Jóhann Hjartarson (2513) tapaði. Jóhann og Guðmundur hafa 3 vinninga en Hilmir Freyr hefur 2,5 vinninga.
Fimmta umferð fer fram í dag. Allir tefla þeir við stigalægri andstæðinga.
Umferð dagsins byrjar kl. 11:15.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (Á ýmsum tímum en flestar kl. 11:15)
Czech Open
Lenka Ptácníková (2074) tekur þátt í opna tékkneska mótinu (Czech Open). Hún hefur 1 vinning eftir 4 umferðir. Hefur teflt við stigahærri andstæðinga í öllum umferðum.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (byrja kl. 13:20)













