MVL stóð sig vel á heimavalli í París. Mynd: Lennart Ootes / Grand Chess Tour

Frakkinn Maxime Vachier-Lagrave (2772) vann atskákhluta Grand Chess Tour-skákhátíðinnar í París sem lauk í gær. MVL hlaut 13 vinninga í 18 skákum.

Alexander Grischuk (2766) varð annar með 12 vinning og Nepo (2775) og Anand (2764) urðu í 3.-4. sæti með 10 vinninga.

Flestir sterkustu skákmenn heims taka þátt að heimsmeistaranum, Magnúsi Carlsen, undanskildum.

Frídagur er í dag en hraðskákin hefst á morgun og lýkur á fimmtudaginn. Þar er tefld tvöföld umferð. Vinningar í atskákinni gilda tvöfalt á við hraðskákina.

Sjá nánar á Chessbase.com

- Auglýsing -