Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2412) hefur hlotið 3 vinninga að loknum fjórum umferðum á alþjóðlegu móti á grísku eyjunni Krít.
Fórnarlömb Helga hafa hingað til ekki verið ýkja stigahá eða á bilinu 1350-1810 skákstig. Hann tapaði fyrir stigahæsta keppenda mótsins, ítalska stórmeistaranum, Alberto David (2534).
Í fimmtu umferð, sem hefst kl. 13, teflir Helgi við heimamanninn Alexandros Kotsinis (2007).
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (Chess24) – hefjast flestar kl. 13
- Auglýsing -















