Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2412) hlaut 5½ í 9 umferðum á alþjóðlega mótinu á grísku eyjunni Krít sem lauk í gær.
Í áttundu og næstsiðustu umferð tapaði Helgi Áss fyrir alþjóðlega meistaranum Dusan Lekic (2330) en sá er Svartfellingur. Í lokaufmerðinni vann hann stigalágan Grikkja. Hann lækkar um 8 stig fyrir frammistöðuna á mótinu.
Í dag hefst annað alþjóðlegt mót á Krít þar sem Helgi er einnig með keppenda. Skák.is mun fylgjast með Helga þar.
- Auglýsing -
















