Júlíus Friðjónsson (2115) og Björgvin Víglundsson (2188) eru efstir og jafnir á Íslandsmóti öldunga (+65) þegar aðeins einni umferð er ólokið. Þeir hafa 3½ vinning. Björgvin vann innbyrðis
þeirra í fimmtu umferð í gær.
Úrslit fimmtu umferðar
Áskell Örn Kárason (2252), Jón Kristinsson (2107) og Páll G. Jónsson (1816) eru í 3.-5. sæti með 3 vinninga og hafa allir möguleika á sigri á mótinu vinni hvorki Júlíus né Björgvin.
Staðan

Röðun lokaumferðarinnar
Björgin teflir við Jón en Júlíus mætir Sævari Bjarnasyni (2096). Áskell teflir við aldursforsetann Pál G. Jónsson (1816) sem hefur staðið afar vel.

Teflt er húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12.
Kristján Örn Elíasson er ekki bara einn besti skákstjóri landsins heldur býður einnig uppá beinar útsendingar frá mótinu. Allar skákir síðustu þriggja umferðanna eru í beinni.
Dagskrá:
6. umferð á sunnudaginn, 22. september, kl. 13:00
Mótið á Chess-Results.
Tilvalið er að mæta á skákstað og fylgjast um leið með lokaumferðinni Haustmóti TR sem hefst á sama tíma. Þar er Guðmundur Kjartansson efstur með fyrir lokaumferðina. Hjörvar Steinn Grétarsson er annar. Aron Þór Mai (2063) er efstur í b-flokki, Aasef Alashtar (1972) í c-flokki og Þorsteinn Magnússon (1527) og Ingvar Wu Skarphéðinsson (1322) í opnum flokki.
















