Myndskreyting: ESE

Skákmótið þar sem kynslóðirnar mætast fer fram 16. sinn á morgun,  sunnudaginn  28. október,  í Skákhöllinni í Faxafeni. 

TAFLFÉLG REYKJAVÍKUR og RIDDARINN, skákklúbbur eldri borgara,  standa saman að mótshaldinu eins og undanfarin ár.  Mótið hefur eflst mjög að  vinsældum með árunum og skipar nú fastan sess í skáklífinu.  Yfir  80 ára aldursmunur er hefur iðulega verið milli yngsta og elsta keppandans. 

Þátttaka í mótinu er ókeypis og miðast við börn og ungmenni á grunnskólaaldri, 15 ára og yngri og roskna skákmenn, 60 ára og eldri.

Mótið hefst kl. 13 og verða tefldar 9 umferðir með 6+2 umhugsunartíma.

Góð verðlaun og viðurkenningar.   Auk aðalverðlauna verða veitt aldurflokkaverðlaun í 3 flokkum ungmenna og öldunga.

Skráning : Æskilegt að skrá sig til þátttlöku fyrirfram hér á síðunni (guli kassinn) eða mæta tímanlega á mótsstað.

- Auglýsing -