Skákmótið þar sem kynslóðirnar mætast fer fram 16. sinn á morgun, sunnudaginn 28. október, í Skákhöllinni í Faxafeni.
TAFLFÉLG REYKJAVÍKUR og RIDDARINN, skákklúbbur eldri borgara, standa saman að mótshaldinu eins og undanfarin ár. Mótið hefur eflst mjög að vinsældum með árunum og skipar nú fastan sess í skáklífinu. Yfir 80 ára aldursmunur er hefur iðulega verið milli yngsta og elsta keppandans.
Þátttaka í mótinu er ókeypis og miðast við börn og ungmenni á grunnskólaaldri, 15 ára og yngri og roskna skákmenn, 60 ára og eldri.
Mótið hefst kl. 13 og verða tefldar 9 umferðir með 6+2 umhugsunartíma.
Góð verðlaun og viðurkenningar. Auk aðalverðlauna verða veitt aldurflokkaverðlaun í 3 flokkum ungmenna og öldunga.
Skráning : Æskilegt að skrá sig til þátttlöku fyrirfram hér á síðunni (guli kassinn) eða mæta tímanlega á mótsstað.














