Spænski stórmeistarinn David Anton (2674) vann sigur á Alexander Grischuk (2759) í áttundu umferð FIDE-svissneska mótsins á Mön. Hann er nú efstur ásamt þeim Levon Aronian (2758) og Fabiano Caruana (2812) þegar átta umferðum af ellefu er lokið.
Magnús Carlsen (2876) gerði jafntefli við Wang Hao (2726) og er í 4.-13. sæti.

Sérkennilegt atvik varð í gær þegar Alexei Shirov og Yu Yangyi tefldu sömu fyrstu 19 leikjana og Sergei Karjakin og Alexei Dreev á næsta borði! Skákstjórinn greip til þess ráð að færa aðra viðureignina í burtu. Enginn grunur er um svindl – heldur var þessi ákvörðun tekin til að forðast óþægindi.
Níunda umferð fer fram í dag. Þá mætast Aronian og Anton. Carlsen mætir Caruana.
Staða efstu manna:
1-3: Anton, Aronian, Caruana v.
4-13: Wang Hao, Alekseenko, Kovalev, Carlsen, Vitiugov, Maghsoodloo, Karjakin, Nakamura, Anand, Gelfand 5.5 v.
14-31: Shirov, Adhiban, Tari, Kasimdzhanov, Grischuk, Rakhmanov, McShane, Yu, Kryvoruchko, So, Svidler, Matlakov, Xiong, Howell, Le, Ragger, Hovhannisyan, Robson 5 v.
Sjá nánar á Chess.com.
Sigurvegari mótsins (eða sá sem sem er efstur á eftir Carlsen og/Caruana) fær keppnisrétt á næsta áskorendamóti sem fram fer í Rússlandi í vor. Mótið er hrikalega sterkt. Af 154 keppendum eru 132 stórmeistarar.















