Bandaríkjamaðurinn Hikaru Nakamura (2745) vann Hvít-Rússann Vladislav Kovalev (2661) í níundu umferð FIDE-svissneska mótsins á Mön. Bandaríkjamaðurinn er nú í 1.-4. sæti með 6½ vinning ásamt landa sínum Fabiano Caruana (2812), Spánverjanum David Anton Guijarro (2674) og Armenanum Levon Aronian (2758).
Magnus Carlsen (2876) er í 5.-15. sæti með 6 vinninga. Tíunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag. Umferðin hefst kl. 14. Tilvalið að byrja á skákinni og skipta svo yfir á leik Man Utd. og Liverpool kl. 15:30. Í hálfleik og að loknum leik er svo hægt að fylgjast með skákinni aftur.
Í umferð dagins mætast Caruana og Anton, Nakamura teflir við Aronian og Carlsen fær það verkefni að freista þess að leggja rússneska stórmeistaranum Maxim Matlakov (2716) að velli.
Röð efstu manna má finna á Chess-Results.
Sjá nánar á Chess.com.
Sigurvegari mótsins (eða sá sem sem er efstur á eftir Carlsen og/Caruana) fær keppnisrétt á næsta áskorendamóti sem fram fer í Rússlandi í vor. Mótið er hrikalega sterkt. Af 154 keppendum eru 132 stórmeistarar.
















