Í túninu heima – Skákmót í Mosó

    0
    241
    Hvenær:
    30. ágúst, 2026 @ 11:30 – 13:30
    2026-08-30T11:30:00+00:00
    2026-08-30T13:30:00+00:00
    Hvar:
    Mosfellsbær
    Þverholt 2
    270 Mosfellsbær
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Dagur Andri Friðgeirsson
    7779229
    Í túninu heima - Skákmót í Mosó @ Mosfellsbær | Mosfellsbær | Mosfellsbær | Ísland

    Skákfélag Mosfellsbæjar stendur fyrir skákmóti á bæjarhátíðinni Í túninu heima, þar sem teflt verður um titilinn Skákmeistari Mosfellsbæjar 2026.

    Tefldar verða 7 umferðir með tímamörkunum 4 mínútur + 3 sekúndur á leik á mann. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

    Staður: Þverholt 2 – fyrir framan Bókasafn Mosfellsbæjar
    Dagsetning: Sunnudagurinn 30. ágúst 2026
    Tími: Kl. 11:30

    Veitingar verða í boði fyrir keppendur frá okkar allra besta Mosfellsbakaríi.

    Verðlaun

    1. sæti – Innrömmuð ljósmynd af Úlfarsfelli (296 m) + vinningur frá Apótekaranum
    2. sæti – Innrömmuð ljósmynd af Reykjafelli (268 m) + vinningur frá Apótekaranum
    3. sæti – Innrömmuð ljósmynd af Helgafelli (217 m) + vinningur frá Apótekaranum

    Myndirnar eru frá Artiq.is.

    Mótið var vel sótt í fyrra þegar um 40 keppendur á öllum aldri og getustigum mættu til leiks. Það væri frábært að sjá enn fleiri í ár!

    Núverandi Skákmeistarar Mosfellsbæjar eru FIDE-meistararnir Oliver Aron Jóhannesson og Örn Leó Jóhannsson.

    Allir velkomnir – óháð aldri og getustigi. Endilega skráið ykkur sem fyrst!

    Skráning: hér

    - Auglýsing -