Alþjóðlega Geðheilbrigðis skákmótið 2026

    0
    133
    Hvenær:
    15. október, 2026 @ 19:30 – 20:30
    2026-10-15T19:30:00+00:00
    2026-10-15T20:30:00+00:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavík
    Faxafen
    108 Reykjavík
    Ísland
    Tengiliður:
    Hörður Jónasson
    7774477
    Alþjóðlega Geðheilbrigðis skákmótið 2026 @ Taflfélag Reykjavík | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert og hefur Vinaskákfélagið skipulagt þetta skákmót undanfarin cirka 20 ár, og í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur.
    Mótið verður haldið, fimmtudaginn, 15. Október í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 og hefst klukkan 19:30. 

    Athugið að mótið kemur í stað hefðbundins fimmtudagsmóts TR.

    Margir af sterkustu skákmönnum landsins hafa mætt á þetta mót.
    Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 4 mín. + 2 sek.
    Skákstjórn verður í höndum TR, En verðlaun og skipulagning í höndum Vinaskákfélagsins.
    Hlé verður gert eftir 5 umf. Til að skákmenn geti fengið sér kaffi og meðlæti.
    Glæsileg verðlaun verða á mótinu eins og venjulega með metalíum og bækur. Einnig verður aukaverðlaun í boði.

    Eftirfarandi verðlaun eru þessi:
    1. 1. Sæti: Gull peningur + Bikar og bók.
    2. 2. Sæti: Silfur peningur + bók.
    3. 3. Sæti: Brons peningur + bók.
    4. 1. Sæti: Kvennaverðlaun: Gull peningur + bók.
    5. 1. Sæti: 50 ára og eldri: Gull peningur + bók.
    6. 1. Sæti: 16 ára og yngri: Gull peningur + bók.

    Skráning fer fram á staðnum.
    Sigurvegari 2025 var: Magnús P. Örnólfsson.
    Fólk er beðið um að koma snemma til að skrá sig.
    Allir velkomnir!!

    - Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn