Barnaskákmót KR

    0
    10
    Hvenær:
    12. október, 2025 @ 13:00 – 16:00
    2025-10-12T13:00:00+00:00
    2025-10-12T16:00:00+00:00

    Af óviðráðanlegum ástæðum þarf að færa barnaskákmót KR af laugardeginum yfir á sunnudaginn þannig að það verður haldið sunnudaginn 12. október 2025 og hefst það klukkan 13:00 í Samfélagshúsinu á Aflagranda 40.

    Tímamörkin verða 8 mínútur á hvorn keppenda að viðbættum 3 sekúndum fyrir hvern leik (8 +3). Tefldar verða 7  umferðir.

    Keppt verður í tveimur flokkum. Annars vegar 1.-3. bekkur og hins vegar 4.-9. bekkur. Mótin verða reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga.

    Efstu krakkarnir í hvorum flokki fá verðlaun.

    Skákdeild KR býður upp á indverskan mat fyrir skráða þátttakendur og aðstandendur frá klukkan 12:00.

    Engin þátttökugjöld eru en þeir sem vilja styrkja mótaröðina er bent á að leggja inn á reikning skákdeildar KR: 0137-26-004400, kt. 441199-2019.

    - Auglýsing -