
Miðvikudaginn 18. mars verður 2 klukkutíma „Arena“ hraðskákmót. Arena mót á Chess.com fara þannig fram að parað er um leið og keppendur ljúka skákum sínum (velji þeir að smella á „next game“). Í þessum mótum er enginn umferðafjöldi, heldur gildir bara að vinna sem flestar skákir. Til þess að flækja málið lítillega, þá eru bónusstig fyrir að vinna margar skákir í röð. Það getur því borgað sig að anda djúpt og reyna að vinna til að fá fleiri stig fyrir skákina.
Tengill: https://www.chess.com/live#r=169273
Nú liggur fyrir að skákstarfið í landinu verður afar takmarkað næstu vikurnar. Það er þó engin ástæða til þess að leggjast í kör, heldur fagna því að “ástandið” kemur ekki í veg fyrir að áhugasamir geti haldið ótrauðir áfram, hist þráðlaust og tekið þátt í skemmtilegum skákviðburðum á Chess.com.
Félag Íslendinga á Chess.com, Team Iceland, mun standa fyrir fjölmörgum skákviðburðum á netinu næstu vikurnar. Leitast verður við að spegla vinsæla skákviðburði og fasta liði í mótaáætlun skákhreyfingarinnar.
Mótin eru að sjálfsögðu opin öllum Íslendingum og það kostar ekkert að taka þátt!
Þeir sem luma á skemmtilegum hugmyndum að mótum geta komið þeim á framfæri með því að senda póst á eggid77@gmail.com.
Þátttakendur þurfa að vera í Team Iceland. Nánari leiðbeiningar verða birtar fljótlega.
DAGSKRÁIN VIKUNA 15. – 22. MARS
- Mánudaginn 16. mars kl. 19:30 – (KR) hraðskákmót. 9. umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma
Tengill: https://www.chess.com/live#t=1158144
- Þriðjudaginn 17. mars kl. 19:30 – Þriðjudagsmót (TR). 15+5 4 umferðir
Tengill: https://www.chess.com/live#t=1158145
- Miðvikudaginn 18. mars kl. 19:30 – Hraðskákmót 3+2. Arena mót í 2 klukkutíma
Tengill: https://www.chess.com/live#r=169273
- Fimmtudaginn 19. mars kl. 19:30 – Hraðskákmót 5+2. Arena mót í 2 klukkutíma
Tengill: https://www.chess.com/live#r=169274











