Íslandsmót barnaskólasveita – 1.-3. bekkur 2025

    0
    823
    Hvenær:
    8. mars, 2025 @ 13:00 – 16:00
    2025-03-08T13:00:00-01:00
    2025-03-08T16:00:00-01:00
    Hvar:
    Rimaskóli
    Rósarimi
    112 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    12000
    Tengiliður:
    Skáksamband Íslands
    5689141
    Íslandsmót barnaskólasveita - 1.-3. bekkur 2025 @ Rimaskóli | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Íslandsmót barnaskólasveita, 1.-3. bekkur fer fram laugardaginn 8. mars í Rimaskóla og hefst kl. 13.

    Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími 5+2 á hvern keppenda.

    Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit – en hver sveit er skipuð fjórum nemendum 1.-3. bekkjar (auk allt að fjögurra varamanna). 

    Þátttökugjöld kr. 12.000 kr.- á  sveit. Þó ekki hærra en 24.000 kr. á skóla. Frítt er fyrir sveitir utan höfuðborgarsvæðisins.

    Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjár sveitirnar og einnig efstu b-e sveitir sem og þrjár efstu landsbyggðarsveitirnar. Veitt verða frammistöðuverðlaun fyrir þá einstaklinga sem fá 6 vinninga eða fleiri (liðsstjórar bera ábyrgð á því að koma upplýsingum til skákstjóra).

    Núverandi Íslandsmeistari barnaskólasveita (1.-3. bekkur) er Rimaskóli. Nánar um mótið í fyrra hér.

    Skráningu skal lokið í í síðasta lagi kl. 16,  fimmtudaginn, 6. mars. Ekki er hægt að skrá sveitir eftir þann tíma.

    Minnt er á Íslandsmót barnaskólasveita, 1.-7. bekkur, og Íslandsmót grunnskólasveita, 8.-10. bekkur, fara fram helgina 29.-30. mars. Barnaskólamótið fer fram á laugardeginum og grunnskólamótið á sunnudeginum.

    - Auglýsing -