Íslandsmót skákfélaga 2024-25

    0
    1236
    Hvenær:
    27. febrúar, 2025 @ 19:00 – 2. mars, 2025 @ 16:00
    2025-02-27T19:00:00-01:00
    2025-03-02T16:00:00-01:00
    Hvar:
    Rimaskóli
    Rósarimi 11
    Tengiliður:
    Skáksamband Íslands
    5689141
    Íslandsmót skákfélaga 2024-25 @ Rimaskóli | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Síðari hluti Íslandsmóts skákfélaga 2024-25 fer fram dagana 27. febrúar – 2. mars nk. Teflt er í Rimaskóla.

    Úrvalsdeildin verður tefld frá fimmtudegi til sunnudags. Aðrar deildir verða tefldar á laugardag og sunnudag.

    Tímasetning Úrvalsdeild Aðrar deildir
    Fimmtud., 27. feb. kl. 19:00 6. umf.
    Föstud., 28. feb. kl. 19:00 7. umf.
    Laugard., 1. mars, kl. 11:00 8. umf. 5. umf.
    Laugard., 1. mars, kl. 17:30 9. umf. 6. umf.
    Sunnud., 2. mars, kl. 11:00 10. umf. 7. umf.

    Í úrvalsdeild verða tímamörkin 90 mínútur á fyrstu 40 leikina auk þess sem 15 mínútur bætast við á hvorn keppenda eftir 40 leiki + 30 sekúnda viðbótartími eftir hvern leik. Í öðrum deildum verður umhugsunartíminn hefðbundin eða 90 mín. á skákina + 30 sek. viðbótartími eftir hvern leik.

    Opið er fyrir félagaskipti þeirra sem ekki tefldu í fyrri hlutanum til 7. febrúar nk. Þessi regla á þó eingöngu um þá sem hafa lögheimilli hérlendis og/eða hafa íslenskan ríkisborgararétt. Þeir sem eru utan taflfélaga (og tefldu ekki í fyrri hlutanum) og eru án alþjóðlegra kappskákstiga geta þó ávallt skráð sig í félag.

    - Auglýsing -