Le Kock-mótaröðin: Mót nr. 7

    0
    338
    Hvenær:
    12. nóvember, 2025 @ 19:30 – 22:00
    2025-11-12T19:30:00-01:00
    2025-11-12T22:00:00-01:00
    Hvar:
    Le Kock
    Tryggvagata 12
    101 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    3000

    VignirVatnar.is heldur áfram með Le Kock mótaröðina í samvinnu við Le Kock og Ölvisholt. Sjöunda mótið fer fram miðvikudagskvöldið 12. nóvember kl 19.30 á Le kock. (Tryggvagata 14, 101 Reykjavík).

    Simon Williams að tafli í Hörpu.

    Enski stórmeistarinn vinsæli Simon Williams mætir til leiks. Simon er þekktur streymari með fjölda fylgjenda og hefur séð um skákskýringar á fjölda heimsklassa móta. Auk þess að vera mikill Íslandsvinur er Simon með skemmtilegan skákstíl og veigrar sér ekki við að fórna liði. Aðdáendur kappans ættu ekki að láta sig vanta enda einstaklega þægilegur í umgengni.

    Fyrsta mótið fór fram í maí þar sem stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson varð hlutskarpastur. Mót númer tvö vann Vignir Vatnar sjálfur eins og þriðja mótiðRóbert Lagerman tók svo fjórða mótið og Örn Leó það fimmta það var svo Vignir Vatnar sem vann sjötta.

    Mótin verða 8 í heildina og eru dagsetningarnar á þeim yfirleitt fyrsti miðvikudagurinn í hverjum mánuði.

    Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 3+2 og á öllum mótunum verða verðlaun eftirfarandi:

    1. 60,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

    2. 40,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

    3. 20,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

    U2000: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes

    Efsti stigalausi: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes

    Efsta konan: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes

    Öll mótin verða reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.

    Stigagjöfin verður með Eurovision stigakerfi. 

    Svona verða stigin eftir sætum, frá fyrsta og niður: 12, 10, 8, 7, 6, 5, 4, 3, 2, 1.

    Stig í mótaröðinni eftir sex mót

    Hægt er að sjá stöðuna á Google Sheets 

    Fyrsta mótið fór fram í maí þar sem stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson varð hlutskarpastur. Mót númer tvö vann Vignir Vatnar sjálfur eins og þriðja mótiðRóbert Lagerman tók svo fjórða mótið og Örn Leó það fimmta það var svo Vignir Vatnar sem vann sjötta.

    12 efstu keppendur á samanlögðum stigum (6/8 bestu mótum gilda) tefla svo til úrslita í beinni útsendingu, þar verða verðlaunin eftirfarandi:

    1. X TBA
    2. X TBA
    3. X TBA

    Þátttökugjald á mótið er 3.000kr 

    Áskrifendur VignirVatnar.is fá frítt í mótið!

    Kennitala: 570418-2030

    Reikningsnúmer: 0133-26-013982

    Mótið er opið fyrir öllum en keppendur undir 15 þurfa að vera með forráðamann með sér.

    Hlökkum til að sjá ykkur á þessum frábæra veitingastað!

    Kær kveðja, Le Kock og VignirVatnar.is.

    - Auglýsing -