Netskákarundanrásir fyrir fámennari svæði með mismikla skákvirkni

    0
    456
    Hvenær:
    24. maí, 2023 @ 17:30 – 19:00
    2023-05-24T17:30:00+00:00
    2023-05-24T19:00:00+00:00
    Hvar:
    Chess.com
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Skáksamband Íslands
    Netskákarundanrásir fyrir fámennari svæði með mismikla skákvirkni @ Chess.com

    Landsmótið í skólaskák fer fram 10. og 11. júní í Kópavogi. Þessa dagana fara fram undankeppnir á ýmsum svæðum og er þegar lokið á Norðurlandi og Suðurnesjum.

    Miðvikudaginn 24. maí nk. fer fram ein undankeppni, haldin á chess.com, fyrir þau svæði þar sem ekki fara fram undankeppnir í raunheimum: Vesturland, Vestfirði, Austurland og Norðurland vestra. Miðað við gömlu kjördæmaskipanina.

    Mótið er eingöngu í boði fyrir þá sem eru þeim í skólum sem finna má í skráningaforminu 

    Undankeppnin fer fram á chess.com og hefst stundvíslega kl. 17:30.

    UNDANKEPPNI Á CHESS.COM

    Teflt er í þremur flokkum.

    • 1.-4. bekkur
    • 5.-7. bekkur
    • 8.-10. bekkur

    Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: Fjórar mínútur á skákina með tveimur viðbótarsekúndum á leik.

    Skráning

    Öll mótin fara fram á sama tíma. Mælt er eindregið með að mæta stundvíslega; eigi síðar en kl. 17:20.

    Sigurvegari hvers flokks vinnur sér keppnisrétt á Landsmótinu í skólaskák.  Oddastigaútreikningur (tie-breaks) Chess.com gildir séu keppendur jafnir.

    Opnað er fyrir skráningu klukkutíma fyrir mót (kl. 16:30).

    Athugið: Það þarf að skrá sig í gegnum skráningaformið, það þarf að vera í skólanetshópnum á Chess.com og það þarf mæta stundvíslega og í réttan flokk. 

    Fyrirspurnir má senda í netfangið gunnar@skaksamband.is

    - Auglýsing -