Norðurlandamót stúlkna 2024

    0
    313
    Hvenær:
    26. apríl, 2024 @ 18:00 – 28. apríl, 2024 @ 20:00
    2024-04-26T18:00:00+00:00
    2024-04-28T20:00:00+00:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Norðurlandamót stúlkna 2024 @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Norðurlandamót stúlkna fer fram helgina, 26.-28. apríl, í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Þátt taka 40 stúlkur og þar af 13 íslenskar!

    A-flokkur (u20)

    Tíu keppendur taka þátt. Fulltrúi Íslands er reynsluboltinn, Iðunn Helgadóttir (1813), sem teflir í fyrsta skipti í a-flokki.

    Mótið á Chess-Results

    B-flokkur (u16)

    14 keppendur taka þátt og á Ísland fimm fulltrúa. Reynsluboltinn Guðrún Fanney Briem er stigahæst fulltrúa okkar í b-flokki. Auk hennar taka þátt Katrín María JónsdóttirMargrét Kristín Einarsdóttir, Sóley Kría Helgadóttir og Hrafndís Karen Óskarsdóttir. Allar að tefla á sínu fyrstu Norðurlandamóti nema Katrín María.

    Mótið á Chess-Results

    C-flokkur (u13)

    16 keppendur taka þátt og þar af á Ísland 7 fulltrúa. Fulltrúar Íslands eru Silja Rún Jónsdóttir (1509), Emilía Embla Berglindardóttir (1505), Sigrún Tara Sigurðardóttir (1468), Elsa Margrét AðalgeirsdóttirTara Líf IngadóttirHalldóra Jónsdóttir og Emilía Sigurðardóttir.

    Mótið á Chess-Results

    Fyrsta umferð verður tefld kl. 18 í dag, föstudag. Mótinu verður svo framhaldið á laugardag og sunnudag með umferðum kl. 9 og 15. Alls eru tefldar fimm umfeðir.

    Beinar útsendingar verða frá öllum skákum mótsins.

    Heimasíða mótsins
    Beinar útsendingar

    - Auglýsing -