Skákþing Norðlendinga

    0
    717
    Hvenær:
    13. desember, 2020 allan daginn
    2020-12-13T00:00:00-01:00
    2020-12-14T00:00:00-01:00
    Hvar:
    Framsýnarsalurinn eða Tornelo
    Garðarsbraut 26
    Húsavík
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Hermann Aðalsteinsson
    Skákþing Norðlendinga @ Framsýnarsalurinn eða Tornelo | Húsavík | Ísland

    Ákveðið hefur verið að Skákþing Norðlendinga 2020 fari fram á netinu (tornelo.com) sunnudaginn 13. desember kl 13:00. Öllum áhugasömum verður heimil þátttaka í mótinu en aðeins keppendur með lögheimili á Norðurlandi geta unnið til verðlauna. Ókeypis verður í mótið. Stefnt að því að tefla 9 umferðir með umhugsunartímanum 8-2. á mann, en endanlegur fjöldi umferða og umhugsunartími ræðst af þátttöku. Mótið hefst kl 13:00 og má búast við að því verði lokið kl 15:00. Gunnar Björnsson verður mótsstjóri.

    Skráning:

    https://tornelo.com/chess/orgs/iceland/events/a5f55253-8763-47da-815d-ba04a113fd99?fbclid=IwAR3QGc4EikNI9RFoL7UuhZ-28P6os-Ojv6MucwaVk9Vzv4vOkGnDzOrV6qM

    Eftirfarandi Oddastig (tiebreaks) gilda í mótinu: Buchholz Cut 1, Buchholz, Direct encounter, AROC, The greater number of wins including forfeits.
    Lokastaðan á chess-results gildir verði menn jafnir í efstu sætum

    Veitt peningaverðlaun fyrir þrjá efstu keppendur á mótinu með lögheimili á Norðurlandi auk eignarbikara.

    Verðlaun skiptast þannig:
    1. sæti 25 þús
    2. sæti 15 þús
    3. sæti 10 þús

    Eignarbikarar verða í verðlaun fyrir þrjá efstu í flokki 16 ára og yngri.

    Það skal tekið fram að keppendur verða skyldaðir til að vera tengdir á ZOOM á aðalmótinu á sunnudag. Ótengdum keppendur á ZOOM er heimil þátttaka í mótinu, en geta ekki unnið til verðlauna.

    Æfingamót haldið á fimmtudagskvöld

    Til að minnka líkur á veseni hjá óvönum notendum tornelo, verður haldið sérstakt æfingamót nk. fimmtudagskvöld á tornelo.com.
    Vonast er til að sem flestir skákmenn á Norðurlandi nýti sér þetta æfingamót og taki síðan þátt í aðalmótinu á sunnudaginn.

    Æfingamótið hefst kl 19:30 á fimmtudagskvöldið og hægt er að skrá sig í það hér

    - Auglýsing -