Suðurlandsmót grunnskóla í skák

    0
    1205
    Hvenær:
    17. febrúar, 2023 @ 10:00 – 12:00
    2023-02-17T10:00:00-01:00
    2023-02-17T12:00:00-01:00
    Hvar:
    Flúðir
    Flúðir
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Suðurlandsmót grunnskóla í skák @ Flúðir | Flúðir | Ísland

    Suðurlandsmót grunnskóla í skák fer fram föstudaginn 17. febrúar nk. Mótið er sveitakeppni fyrir grunnskóla á Suðurlandi. Teflt verður í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum.

    Teflt er í tveimur flokkum. Annars fyrir 1.-7. bekk og hins vegar fyrir 8.-10. bekk. Fjórir tefla í hverri sveit.

    Mótið hefst kl. 10:00 og er áætlað því ljúki um kl. 12:00. Verðlaun fyrir 3 efstu sveitirnar í báðum flokkum.
    Flúðaskóli býður upp á létta hressingu um mitt mótið. Að sjálfsögðu er hægt að koma með nesti.

    Skráningarfrestur er til kl. 16, miðvikudaginn, 15. febrúar.

    Skráningarform

    Þegar skráðar sveitir

    Mótshaldið er að þessu sinni samvinnuverkefni Flúðaskóla og Skáksambands Íslands. Þetta er í fjórða sinn sem mótið fer fram. Við hvetjum skóla á Suðurlandi til að taka þátt! Engin þátttökugjöld.

    Nánari upplýsingar í síma 820 6533 (Gunnar) eða gunnar@skaksamband.is.

    - Auglýsing -