Faxafen 12
108 Reykjavík
Ísland

Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák (Skákþings Íslands) fer fram við í skákhöll Faxafeni 12, 26. ágúst – 3. september. Áskorendaflokkur er opinn öllum.
Verðlaun
- 100.000 kr.
- 60.000 kr.
- 40.000 kr
Verðlaun skiptast eftir Hort-kerfi séu menn efstir í verðlaunasætum í áskorendaflokki. Tvö efstu sætin gefa keppnisrétt í landsliðsflokki árið 2024. Oddastigaútreikningur* ræður lokaröð sæta.
Umferðartafla
- Laugardagurinn, 26. ágúst kl. 13:00
- Sunnudagurinn, 27. ágúst, kl 13:00
- Mánudagurinn, 28. ágúst, kl. 18:30
- Þriðjudagurinn, 29. ágúst, kl. 18:30
- Miðvikudagurinn, 30. ágúst, kl. 18:30
- Fimmtudagurinn, 31. ágúst, kl. 18:30
- Föstudagurinn, 1. september, kl. 13:00
- Laugardagurinn, 2. september, kl. 13:00
- Sunnudagurinn, 3. september, kl. 13:00
Þátttökugjöld
Þátttökugjöld eru 10.000 kr. Unglingar 16 ára og yngri (2007 og síðar) fá 50% afslátt. Titilhafar aðrir en CM/WCM fá frí þátttökugjöld.
Skráning
Skráning fer eingöngu fram á gula kassanum á Skák.is. Ekki verður hægt að skrá sig til leiks á skákstað. Skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn, 24. ágúst kl. 23:59. Þátttökugjöld skal leggja inn á reikning 101-26-12763, kt. 580269-5409.
Tímamörk
90 mínútur + 15 mínútur eftir 40 leiki. 30 sekúnda viðbótartími eftir hvern leik.
Skákstjórn
Yfirdómari mótsins veður IA Róbert Lagerman.
Yfirsetur
Hægt er að taka tvær yfirsetur í umferðum 1-7 og fá fyrir hana hálfan vinning. Óska þarf eftir yfirsetunni fyrir lok umferðarinnar á undan á sannarlegan hátt.
*Oddastig
- Flestar tefldar skákir
- Bucholz -1
- Bucholz
- Sonnoborn-Berger
- Innbyrðis úrslit
- Hlutkesti