Team Iceland gegn Argentínu (bullet og hraðskák)

    0
    1453
    Hvenær:
    9. september, 2018 @ 20:00
    2018-09-09T20:00:00+00:00
    2018-09-09T20:15:00+00:00
    Hvar:
    Chess.com
    Tengiliður:
    Tómas Veigar Sigurðarson
    6621455

    Vináttukeppni 3/4 vegna þátttöku „Team Iceland“ í Live Chess World League. Liðið þarf að ljúka fjórum vináttukeppnum áður en deildin hefst í október.

    Að þessu sinni mætum við liði Argentínu. Þeir enduðu í 7. sæti í 1. deild á tímabilinu sem lauk í ágúst. Þeir hafa verið að tefla á 20-30 borðum og ættu því flestir að fá andstæðing í þessari viðureign.

    Allir eru hvattir til að ganga í „Team Iceland“ og mæta til leiks!

    Allir geta verið með! Hvað þarf að gera til að taka þátt?

    Keppendur þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst. Tengill á mótið verður birtur fyrir mót en hann má einnig finna í „Tournaments“ flipanum á Chess.com áður en keppnin hefst.

    Nánari upplýsingar verða birtar fljótlega

    Dagskráin. Ath nýjar tímasetningar!

    - Auglýsing -