Team Iceland gegn Argentínu – Leifturskák og hraðskák

    0
    1382
    Hvenær:
    7. október, 2018 @ 20:00 – 21:00
    2018-10-07T20:00:00+00:00
    2018-10-07T21:00:00+00:00
    Hvar:
    Chess.com
    Tengiliður:
    Tómas Veigar Sigurðarson
    6621455

    Þriðja keppnistímabil Heimsdeildarinnar í netskák hófst formlega í dag, 1. okótber. Gefin hefur verið út pörun í fyrstu umferð og mætir Team Iceland sterku liði Argentínumanna á sunnudaginn kl. 20.

    Team Iceland mætti Argentínu á undirbúningstímabilinu og var niðurstaðan þá stórsigur í leifturskákinni en sorglegt tap í hraðskákinni. Búast má við því að Argentína mæti með talsvert sterkara lið að þessu sinni, enda um að ræða formlega keppni, en ekki vináttukeppni líkt og í haust. Allir eru því hvattir til að mæta til leiks og taka þátt í því að kveða niður Argentínudrauginn!

    Hvenær?

    Keppnin verður með sama sniði og undanfarnar vikur, en fyrst er tefld leifturskák og hefst sú viðureign kl. 20:00. Því næst er tefld hraðskák og hefst sú rimma kl. 20:20. Athugið að keppendur þurfa að skipta um mót á milli viðureigna, en einfaldast er að nota “Tournaments” flipann á Chess.com til þess.

    HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?

    Keppendur þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst. Tengill á mótið verður birtur fyrir mót en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com áður en keppnin hefst.

    Allir eru hvattir til að ganga í liðið, en ekki er gerð krafa um styrkleika. Því fleiri – því betra!

    Dagskráin

    Umferðatafla og pörun keppnistímabilsins

    Endanleg pörun hefur ekki verið gefin út, en ætti að birtast fljótlega. Fyrirkomulagið er þannig að pörun er gefin út fyrir hverja viku fyrir sig. Hver viðureign skal svo fara fram innan þess tímaramma sem þarna kemur fram. 1. umferð skal þannig tefld í vikunni 1.-7. október en nákvæm tímasetning er samkomulagsatriði.

    v/hefst v/lýkur Vika nr. Umferð Teflum við Fer fram
    01. okt 07. okt 1 1 Argentina Live Chess 07. okt kl. 20
    08. okt 14. okt 2 2
    15. okt 21. okt 3 Frí
    22. okt 28. okt 4 3
    29. okt 04. nóv 5 4
    05. nóv 11. nóv 6 Frí
    12. nóv 18. nóv 7 5
    19. nóv 25. nóv 8 6
    26. nóv 02. des 9 Frí
    03. des 09. des 10 7
    10. des 16. des 11 Adjustments
    17. des 23. des 12 8
    24. des 30. des 13 Frí
    31. des 06. Jan 14 9
    07. Jan 13. Jan 15 Frí
    14. Jan 20. Jan 16 10

     

    Deildin

    1. deild (lágmark 20 borð)
    Srbija Tim
    Team Russia
    Team Ukraine
    Team Peru
    Argentina Live Chess
    Team Slovakia
    Ecuador Live Chess
    Iceland
    - Auglýsing -