NÆSTA VIÐUREIGN – ALLIR GETA VERIÐ MEÐ!
Næsta viðureign, sem fram fer sunnudaginn 16. sept kl. 18:00, verður gegn afar sterku liði Serbíu!
Lið Serba er gríðarlega þétt (sjá hér) og líklega eitt af sterkustu liðum deildarinnar. Þeir unnu allar viðureignir sínar í 1. deild á tímabilinu sem lauk í ágúst, en töpuðu mjög óvænt í úrslitum, fyrst gegn Rússum og næst gegn Úkraínu. Þeir enduðu því í þriðja sæti á síðasta tímabili.
HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?
Keppendur þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst. Tengill á mótið verður birtur fyrir mót en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com áður en keppnin hefst.
Allir eru hvattir til að ganga í liðið, en ekki er gerð krafa um styrkleika. Því fleiri – því betra!
DAGSKRÁIN
- Sunnudagur 16. september kl. 18:00 – Bullet keppni (Ísland – Serbía) 1/1 (https://www.chess.com/live#tm=1647)
- Sunnudagur 16. september kl. 18:20 – Hraðskák (Ísland – Serbía) 5/2 (https://www.chess.com/live#tm=1648)
- Sunnudagur 16. september kl. 19:00 – Aukamót (lett mot) 3/2 Arena – fyrir þá sem vilja tefla meira (Íslendingar) (https://www.chess.com/live#r=62171)
- Auglýsing -












