Hannes Hlífar Íslandsmeistari í skák í níunda sinn!

0
813

Jafntefli varð í skák Stefáns Kristjánssonar og Braga Þorfinnssonar og þ.a.l. ljóst að Hannes Hlífar Stefánsson er Íslandsmeistari í níunda sinn og það reyndar á aðeins 10 árum en eitt árið tók Hannes ekki þátt í mótinu!   Stefán Kristjánsson varð annar og Bragi Þorfinnsson þriðji en enn er tveimur skákum ólokið í lokaumferðinni.

Enginn skákmaður hefur sigrað jafnoft á Íslandsmótinu og Hannes en næstu menn hafa hampað titlinum sjö sinnum.

Enn er mikil spenna á Íslandsmóti kvenna en bæði Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Guðlaug Þorsteinsdóttir, sem voru efstar fyrir umferðina, sitja enn að tafli gegn andstæðingum sínum.